Eldri borgarar tregir til að ganga á eigin sparnað

Sparnaður Íslendinga minnkar ekki þegar þeir komast á eftirlauna­aldur, heldur eykst hann enn frekar, samkvæmt greiningu Benedikts Jóhann­es­sonar í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Árlegur sparnaður einstaklinga eykst með aldri og heldur áfram að aukast hér á landi þrátt fyrir að tekjur minnka þegar komið er á eftirlauna­aldur. Þetta eru niður­stöður Benedikts Jóhannessonar, stærð­fræðings og fyrr­verandi fjármála­ráðherra í grein sinni sem birtist í nýjasta tölublaði Vísbendingar, sem kom út á föstu­daginn.

Í greiningu Benedikts, sem byggir að miklu leyti á rann­sóknum fyrir skýrslu sem Talna­könnun vann fyrir Birtu lífeyris­sjóð, er lífeyris­sparnaður Íslendinga skoðaður frá árinu 1993 til 2019. Samkvæmt henni hækkar árlegur sparnaður frá þrítugu til sextugs úr 200 þúsund krónum í 600 þúsund krónur.

Benedikt segir slíka hækkun rökrétta, þar sem ungt fólk skuldi hlutfalls­lega meira en þeir sem eru á miðjum aldri. Á elliárum segir hann svo að búast mætti við að fólk gangi á sparnaðinn sinn þangað til að hann verður að núlli.

Hins vegar leiðir greiningin hið gagnstæða í ljós. Sparnaður Íslendinga hélt áfram að aukast á eftirlauna­aldri, en árlegt meðaltal hans var komið upp í milljón krónur hjá þeim sem eru yfir áttrætt.

Að mati Benedikts er aukinn sparnaður samhliða minni tekjum þvert á það sem tilgangurinn er með sparnaðinum. Sparnaðurinn verður til vegna hækkandi eigna­stöðu og minni skulda, en með því eykst hrein eign einstaklinga.

Benedikt bætir einnig við að fasta­fjármunir séu lægra hlutfall af eignum hjá eldri borgurum heldur en hjá þeim sem eru yngri og því sé ekki rétt að sparnaður elli­lífeyrisþega hafi einungis aukist vegna hærra fasteigna­verðs.

Lesa má grein Benedikts í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár