Húnaþing vestra sendir frá sér hjálparkall

Sveitar­stjórn Húnaþings vestra lýsir því hvernig grunn­stofnanir samfélagsins voru óviðbúnar fárviðrinu og yfir­völdum fyrirfórst að tryggja öryggi þeirra. Íbúar höfðu hvorki rafmagn, fjar­skipti né aðgengi að upplýsingum þar sem grunn­innviðir brugðust.

Rauð viðvörun
Rauð við­vörun Illviðri síð­ustu daga hefur svipt íbúa á Norð­ur­landi öryggi og örygg­is­kennd. Mynd: Húnaþing vestra

„Húnaþing vestra hefur verið rafmagns­laust í rúmlega 40 klukku­stundir,“ segir í bókun sveitar­stjórnar Húnaþings vestra í dag, þar sem því er lýst hvernig „allir helstu opinberu innviðir samfélagsins brugðust“ í illviðri síðustu daga vegna ónógs viðbúnaðar þeirra sem sinna mikil­vægum innviðum samfélagsins.

Þannig hefur verið rafmagns­laust í fárviðri og íbúar á sama tíma ekki haft aðgengi að upplýsingum þar sem fjar­skipti og útsendingar Ríkis­útvarpsins hafa legið niðri.

Húnaþing vestra nær frá Hrúta­firði í vestri til Húnaflóa í austri, skammt vestan Blönduóss. Íbúarnir eru aðeins um 1.200 talsins og er stærsta byggðin Hvamms­tangi.

Sveitar­stjórnin lýsir því í bókun sinni í dag hvernig rafmagns­öryggi, aðgengi að upplýsingum og samskipta­leiðir hafi brugðist vegna lítils viðbúnaðar grunn­þjónustu­kerfa. Hins vegar hafi sjálfboða­liðar komið til bjargar. „Það er algerlega óviðunandi að grunn­stofnanir samfélagsins, RARIK, Landsnet og fjarskipta­fyrirtækin hafi ekki verið betur undirbúin og mönnuð á svæðinu en raun ber vitni. Aftur á móti voru Björgunar­sveitirnar og Rauði krossinn, sem rekin eru í sjálfboða­vinnu, vel undirbúin og komin með tæki og fólk á staðinn áður en veðrið skall á.“

Þau þakka sjálfboða­liðum að ekki fór verr. „Fórnfýsi þessa fólks er okkur sem hér búum algerlega ómetanleg.“

Eftir­farandi er bókun sveitar­stjórnar í heild sinni.

Bókun sveitarstjórnar Húnaþings vestra

„Sveitar­stjórn Húnaþings vestra lítur atburði síðustu sólar­hringa grafal­varlegum augum. Ljóst er að allir helstu opinberu innviðir samfélagsins brugðust í því veður­áhlaupi sem nú gengur yfir.

Starfs­fólk og sjálfboða­liðar sem staðið hafa vaktina hafa unnið þrekvirki síðustu daga við að koma á rafmagni, fjar­skiptum og greiða fyrir samgöngum eins og kostur er. Fórnfýsi þessa fólks er okkur sem hér búum algerlega ómetanleg.

„Fórnfýsi þessa fólks er okkur sem hér búum algerlega ómetanleg.“

Húnaþing vestra hefur verið rafmagns­laust í rúmlega 40 klukku­stundir, hluti sveitar­félagsins er ekki enn kominn með rafmagn og ekki vitað hversu lengi það ástand varir. Ljóst er að nú þegar hefur orðið talsvert tjón hjá íbúum og eykst það eftir því sem tíminn líður.

Það er algerlega óviðunandi að grunn­stofnanir samfélagsins, RARIK, Landsnet og fjarskipta­fyrirtækin hafi ekki verið betur undirbúin og mönnuð á svæðinu en raun ber vitni. Aftur á móti voru Björgunar­sveitirnar og Rauði krossinn, sem rekin eru í sjálfboða­vinnu, vel undirbúin og komin með tæki og fólk á staðinn áður en veðrið skall á.

Óásættanlegt er að tengi­virkið í Hrúta­tungu hafi verið ómannað þrátt fyrir yfir­lýsingar Landsnets um annað. Sveitar­stjórn Húnaþings vestra gerir þá grundvallar­kröfu að á svæðinu sé mannafli sem getur brugðist við með skömmum fyrirvara. Starfsstöð RARIK á Hvamms­tanga er einmennings­starfsstöð og hefur því ekki burði til að takast á við aðstæður sem þessar. Nú stendur fyrir dyrum að RARIK leggi niður starfs­stöðina á Hvamms­tanga sem sveitar­stjórn telur með öllu óviðunandi. Aðstæður síðustu daga sýna fram á mikilvægi þess að á Hvamms­tanga sé starfandi vinnu­flokkur með a.m.k. tveimur til fjórum stöðu­gildum. Engin varaaflsstöð er í Húnaþingi vestra og hefði verið hægt að lágmarka vandann ef slík stöð væri staðsett á Hvamms­tanga.

Í kjölfar víðtæks rafmagns­leysis duttu öll samskipti út, farsíma­samband og Tetra kerfi lögreglu. Lífs­spursmál er að íbúar sveitar­félagsins geti náð í viðbragðs­aðila ef alvarleg slys eða veikindi ber að höndum.

„... þá sérstak­lega er litið til öryggis­hlutverks Ríkis­útvarpsins sem brást algerlega“

Hlutverk fjölmiðla er mjög mikilvægt í aðstæðum líkt og sköpuðust síðustu daga og þá sérstak­lega er litið til öryggis­hlutverks Ríkis­útvarpsins sem brást algerlega. Dreifi­kerfi RÚV lá niðri víða í sveitar­félaginu og náðust sendingar illa eða alls ekki. Almennri upplýsinga­gjöf til íbúa um stöðu og horfur var ekki sinnt. Litlar sem engar fréttir bárust frá Húnaþingi vestra þrátt fyrir að veður­aðstæður væru hvað verstar á þessu svæði og útvarpið nær eina leið íbúa til að fá upplýsingar. Ótækt er að vísað sé til vefsíðna til frekari upplýsinga um stöðu mála þegar hvorki er rafmagn né fjarskipta­samband.

Grafal­varlegt er að ekki sé starfsstöð lögreglu á svæðinu sérstak­lega við aðstæður sem þessar. Sveitar­stjórn Húnaþings vestra hefur ítrekað vakið máls á þessu án nokkurra undir­tekta.

Sveitar­stjórn Húnaþings vestra lýsir áhyggjum sínum af því að ekki er vara­aflstöð við Heilbrigðis­stofnun Vestur­lands Hvamms­tanga. Sveitar­stjórn hvetur til að úr því verði bætt hið snarasta.

Sveitar­stjórn Húnaþings vestra mun á næstu dögum óska eftir fundum með RARIK, Landsneti, Heilbrigðis­stofnun Vestur­lands, lögreglu og stjórn­völdum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár