Ráðherra skipar aðgerðahóp um verkefnið Karlar og jafnrétti

Meg­in­hlut­verk aðgerða­hóps­ins er meðal ann­ars að beita sér fyrir aðgerðum stjórn­valda um að auka þátt­töku drengja og karla í öllu starfi og stefnu­mótun á sviði jafn­rétt­is­mála.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Einar Daðason félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefur ákveðið að skipa aðgerða­hóp um verk­efnið Karlar og jafn­rétti í sam­ræmi við fram­kvæmda­á­ætlun í jafn­rétt­is­málum fyrir árin 2016 til 2019.

Þetta kemur fram í svari Ásmundar Einars við fyr­ir­spurn frá Andrési Inga Jónssyni um karla og jafn­rétti.

Andrés Ingi spurði hvernig brugð­ist hefði verið við þeim fimmtán til­lögum sem fram komu í skýrsl­unni Karlar og jafn­rétti: Skýrsla og til­lögur um auk­inn hlut karla í jafn­rétt­is­málum, sem vel­ferð­ar­ráð­herra var afhent í apríl árið 2013.

Í svar­inu kemur fram að meg­in­hlut­verk aðgerða­hóps­ins sé ann­ars vegar að beita sér fyrir aðgerðum stjórn­valda um að auka þátt­töku drengja og karla í öllu starfi og stefnu­mótun á sviði jafn­rétt­is­mála og hins vegar að vinna til­lögur um hvernig stefnu­mótun á sviði jafn­rétt­is­mála geti betur tekið mið af sam­fé­lags­legri stöðu karla.

Aðgerða­hópnum verði falið að taka mið af þeim til­lögum sem fram komu í fyrr­verndri skýrslu. Und­ir­bún­ingur fyrir skipun aðgerða­hóps­ins er í ferli og hefur hóp­ur­inn störf á næst­unni, segir í svar­inu.

Verkefnið hefur tafist

Gert er ráð fyrir að aðgerða­hóp­ur­inn verði skip­aður full­trúum frá heil­brigð­is­sviði Háskól­ans á Akureyri, Félagi leik­skóla­kenn­ara, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu og vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu. Sér­fræð­ingur Jafn­rétt­is­stofu mun starfa með aðgerða­hópnum. Jafn­rétt­is­stofa hefur unnið verk­efn­is­lýs­ingu fyrir aðgerða­hóp­inn.

„Á und­ir­bún­ings­tíma verk­efn­is­ins hafa orðið miklar breyt­ingar í kjöl­far #MeToo-bylt­ing­ar­innar. Jafn­framt hefur verk­efnið taf­ist. Því var talið nauð­syn­legt að fækka verk­efnum aðgerða­hóps­ins og sníða að umræðu í sam­fé­lag­inu um kyn­ferð­is­lega og kyn­bundna áreitni,“ segir í svar­inu.

Gera tillögur um viðbrögð stjórnvalda við #metoo

Við­fangs­efnum aðgerða­hóps­ins er skipt í fjóra meg­in­þætti. Í fyrsta lagi að vinna að heild­stæðri aðgerða­á­ætlun stjórn­valda, meðal ann­ars á grund­velli til­lagna nefndar um karla og jafn­rétti frá árinu 2013. Áætlunin fjalli sér­stak­lega um hvernig stefnu­mótun stjórn­valda á sviði jafn­rétt­is­mála geti betur tekið mið af sam­fé­lags­legri stöðu karla og drengja og fjalli um aðgerðir er snúa að þátt­töku karla og drengja á sviði jafn­rétt­is­mála, fæð­ing­ar­or­lofstöku feðra, bættum mögu­leikum karla á sam­hæf­ingu fjöl­skyldu- og atvinnu­lífs sem og aðgerðum um upp­brot kyn­bund­ins náms- og starfs­vals með til­liti til brott­falls karla úr námi á efri skóla­stigum.

Í öðru lagi að gera til­lögur um mæl­ingar á við­horfum drengja og karla til helstu við­fangs­efna jafn­rétt­is­mála með hlið­sjón af erlendum við­horfskönn­unum. Könnunin kanni sér­stak­lega við­horf og notkun karla á heil­brigð­is­þjón­ustu og sömu­leiðis hvort ákveðnir hópar karla fari á mis við þjón­ustu­úr­ræði í heil­brigð­is­málum.

Í þriðja lagi að gera til­lögur um við­brögð stjórn­valda við #MeToo-bylt­ing­unni og í fjórða lagi að gera til­lögur um aðgerðir til að efla sál­fræði- og geð­heil­brigð­is­þjón­ustu við þolendur og ger­endur kyn­ferð­is­of­beldis.

Ráðherra býst við að aðgerða­hóp­ur­inn ljúki störfum og skili skýrslu með til­lögum haustið 2019 til félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra og ráð­herra­nefndar um jafn­rétt­is­mál þar sem meðal ann­ars skuli gera grein fyrir stöðu þekk­ingar um karla og jafn­rétti og setja fram til­lögur að rann­sóknum og aðgerðum. Horfa skuli til fyr­ir­mynda og stefnu­mót­unar um karla og jafn­rétti á Norð­ur­löndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár