Rúmar 20 milljónir til McKinsey & Company

Vinstri­st­jórnin setti á fót sam­ráðs­vett­vang sem hvatti til sam­ein­ingar stofn­ana og sparn­aðar hjá hinu opin­bera. Ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið var gagn­rýnt harð­lega fyrir vinnu­brögð í tengslum við end­ur­skipu­lagn­ingu breska heil­brigð­is­kerf­is­ins um svipað leyti og sam­starfið við Ísland átti sér stað.

Ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið McKinsey & Company fékk 20,7 millj­ónir frá hinu opin­bera fyrir vinnu vegna sam­ráðs­vett­vangs um leið Íslands til auk­innar hag­sældar í stjórn­ar­tíð Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna. Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Willums Þór Þórs­sonar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, um útgjöld ráðu­neyta vegna sér­fræði-, ráð­gjafar- og kynn­ing­ar­starfa á árunum 2010, 2011 og 2012. Enginn aðili sem fyr­ir­spurnin nær til fékk hærri greiðslur en McKinsey sem er eitt virtasta ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki í heimi. 

Að sam­ráðs­vett­vangnum komu for­menn allra stjórn­mála­flokka á Alþingi, helstu hags­muna­sam­tök laun­þega og atvinnu­rek­enda, full­trúar háskóla­sam­fé­lags­ins, sveit­ar­fé­laga og stjórn­endur fyr­ir­tækja úr ýmsum atvinnu­greinum. Vett­vang­ur­inn var settur á fót eftir að ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið gaf út skýrslu, á eigin kostnað, um vaxt­ar­mögu­leika íslenska hag­kerf­is­ins. 

Tillögur hóps­ins ollu nokkrum titr­ingi þegar þær voru kynntar í maí 2013. Lagt var til að fram­halds­skólum, lög­gæslu­stofn­unum, sýslu­manns­emb­ættum og heil­brigð­is­stofn­unum yrði fækkað með það fyrir augum að ná 2,3 pró­senta fram­leiðni­aukn­ingu hjá hinu opin­bera. Þá var lagt til að bekkir í grunn­skóla yrðu fjöl­menn­ari og náms­árin færri, auk þess sem örorku­mati yrði breytt og stuðlað að auk­inni atvinnu­þátt­töku öryrkja, bættum hvötum og auk­inni aðkomu atvinnu­lífs. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár