Ungverjar mótmæla harðlega internet-skatti stjórnvalda

Um eitt hundrað þúsund Ungverjar söfnuðust saman í höfuðborg landsins, Budapest, í gær til að mótmæla fyrir­huguðum skatti stjórn­valda á gagnamagn á internetinu. Þá vildi mann­söfnuðurinn sömuleiðis láta í ljós óánægju sína með forsætis­ráðherrann Viktor Orban, einræðis­tilburði hans og stefnu ríkis­stjórnarinnar sem hneigist í þá átt minnka samskipti við aðrar þjóðir Evrópu­sambandsins. Reuters greinir frá málinu.

Mótmælin í gær voru þau stærstu síðan Viktor Orban komst til valda árið 2010, en þrátt fyrir að hafa verið sökuð um einræðis­tilburði í valdatíð sinni, var ríkis­stjórn hans endur­kjörin með miklum yfir­burðum á síðasta ári.

Í tíð sinni hefur ríkis­stjórnin skattlagt sérstak­lega banka­kerfið, smásöluna, og orku- og fjarskipta­geirann til að halda ríkis­fjármálunum á áætlun, en samhliða hefur hún stefnt í hættu hagnaði í ýmsum kimum hagkerfisins og gert alþjóð­lega fjárfesta tauga­óstyrka.

Áform stjórn­valda um sérstaka skatt­lagningu á gagnamagn á internetinu komst í hámæli í Ungverja­landi í síðustu viku. Strax í kjölfarið mótmæltu fjarskipta­fyrirtækin áformunum, sem og viðskipta­vinir þeirra sem sögðu skatt­lagninguna ólýðræðislega.

Mótmælin í gær voru skipulögð í gegnum Facebook. Mann­fjöldinn arkaði í gegnum miðborg Budapest og krafðist þess að horfið yrði frá skatt­lagningunni og að forsætis­ráðherra landsins færi frá völdum. Margir mótmælendur héldu á lofti kröfu­skiltum með áletruninni "ERROR," og "Hversu oft ætlið þið að féfletta okkur?"

Internet-skattur lækkaður eftir fyrri mótmæli


Stjórn­völd í Ung­verja­landi ætl­uðu í upp­hafi að skatt­leggja hvert gíga­bæt á 150 ung­versk for­int, eða sem sam­svarar 75 íslenskum krónum. Eftir útreikn­inga grein­ing­ar­að­ila, sem sýndu fram á að skatt­lagn­ingin myndi skila rík­is­sjóði Ung­verja­lands meiru en sem nemur hagn­aði fjar­skipta­geirans, og mót­mæli á sunnu­dag­inn sem þús­undir manna tóku þátt í, ákváðu stjórn­völd að setja sér­stakt þak á inter­net-skatt­inn; 700 for­ints á ein­stak­linga (350 ísk. krónur) og 5.000 for­ints á fyr­ir­tæki (2.500 ísk. krónur).

Þessi ákvörðun gerði engu að síður lítið til að draga úr reiði Ungverja, eins og mótmælin í gær bera með sér.

Ríkis­stjórn Orban hefur vísað á bug ásökunum um ólýðræðislegar áherslur, og segir að markmið hennar sé að deila skatt­byrði ríkisins jafnt á alla geira efnahags­lífsins. Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins hefur sömuleiðis gagnrýnt fyrir­hugaðan internet-skatt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár