Smitandi hugarflug og hugmyndaauðgi

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fór að sjá Loddarann í Þjóð­leikhúsinu.

Þjóðleikhúsið: Loddarinn

Höfundur: Molière

Þýðing: Hall­grímur Helgason

Leik­stjórn: Stefan Metz

Leikmynd og búningar: Sean Mackaoui

Lýsing: Ólafur Ágúst Stef­ánsson

Tónlist og hljóðmynd: Elvar Geir Sævarsson

Leikendur: Hilmir Snær Guðnason, Guðjón Davíð Karlsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Kristín Þóra Haralds­dóttir, Lára Jóhanna Jóns­dóttir, Oddur Júlíusson, Ragn­heiður Steindórs­dóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Dóra Jóhanns­dóttir.

Leikrit Molières, Loddarinn er betur þekkt undir heitinu Tartuffe og á stundum skeytt „hræsnarinn” aftan við í samræmi við franskt heiti þess, „Tartuffe, ou l’Imposteur”. Imposteur mun þó að merkingu vera nær „svikara” en „loddara” en hvað þetta varðar hefur leik­húsfólk gegnum tíðina tekið sér allnokkurt frelsi í samræmi við þann eigin­leika leikhúss að fara mismun­andi túlkunar­leiðir í uppfærslu verka og tala til áhorfenda sinna á þann hátt sem hæfir hverjum tíma fyrir sig. Það er því engin ástæða til að fetta fingur út í þann merkingarmun; en eins og Guðrún Kristins­dóttir Urfalino bendir á í fróðlegri grein í leikskrá hafa leik­stjórar og leikhópar lagt mjög ólíkar áherslur í túlkun sinni, einkum hvað varðar titil­hlutverkið Tartuffe og eitt aðal­hlut­verkanna, hins velstæða Orgons. Í sýningu Þjóð­leikhússins á Loddaranum hafa þeir reyndar hlotið ný og íslenskari nöfn – Guðreður og Orgeir – sem færir leikinn óneitanlega nær íslenskum veruleika auk þess að gefa góð færi á ýmsum orða­leikjum.

Sögu­þráðurinn er eins og venja er hjá Molière frekar einfaldur og blátt áfram: Hinn auðugi fjölskyldu­faðir Orgeir hefur tekið inn á heimili sitt hinn að því er virðist heit­trúaða Guðreð og lítur á hann sem góðmennskuna og göfug­lyndið uppmálað, trúir hverju hans orði og gerir hann að sínum andlega leiðtoga. Ekki er þó öllum um þetta gefið – eigin­konan Elmíra, börnin Maríanna og Danni og ekki síst þjónustu­stúlkan Dóra gruna hinn heilaga gúrú um græsku enda má greina tals­verðan mun hjá honum á orði og æði – tal hans er fagurgali en gjörðir hans grunsamlegar, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Reyndar fá áhorf­endur ekki að sjá Guðreð fyrr en komið er fram í miðjan leik – það er talað um hann og heilmikið deilt og áhorf­endur verða því að gera upp hug sinn sjálfir þegar hann kemur sjálfur fram á sjónar­sviðið. Hér er hins vegar ljóst frá upphafi að Guðreður er hinn versti óþokki. Trúgirni Orgeirs verður þeim mun illskiljanlegri, en vald hans sem heimilis­föður er hins vegar óumdeilt. Hér er líka að líkindum að finna rótina að ákveðnum vanda sem Loddari Þjóð­leikhússins á við að stríða, en að honum verður vikið síðar.

Ljóst er að þau mæðgin, Petrúnella og Orgeir, eru á bandi Guðreðar meðan aðrir fjölskyldu­meðlimir finna Guðreði allt til foráttu. Andstaða þeirra verður vel skiljanleg í ljósi þess að Orgeir ákveður að gefa Guðreði dóttur sína fyrir eiginkonu í stað þess að samþykkja fyrir­hugað hjónaband hennar við kærustuna Völu, hann rekur son sinn að heimann fyrir að ljúga upp á Guðreð að hafa gert hosur sínar grænar gangvart eigin­konunni Elmíru og heimilar Guðreði í kjölfarið ótakmarkað samneyti við eiginkonu sína og á endanum arfleiðir hann Guðreð að öllum eigum sínum. Minna má það nú vera – en fyrir Molière vakir auðvitað að skapa átök og dramatíska spennu.

Á endanum sér Elmíra engin ráð önnur en að egna gildru fyrir Guðreð til að sanna fláræði hans og svikulan huga gagnvart Orgeiri velgjörða­manni hans og það gerir hún að Orgeiri sjáandi. Við það opnast augu Orgeirs, en of seint. Hann er þegar búinn að afsala sér öllum eigum sínum og nú virðist ekkert bíða nema útburður úr húsi og heimili að boði Guðreðar. Um endalok sýningarinnar skal þó ekki uppljóstrað hér – loka­atriðið er glæsi­legur loka­hnykkur á sýningunni og vekur fleiri hugrenningar en unnt er að gera grein fyrir í stuttri gagnrýni.

Loddarinn er þýddur af Hallgrími Helgasyni og fylgir hann hefðinni að hafa textann strang­lega bundinn og rímaðan; auk þess færir Hall­grímur málfarið til nútíma með skemmtilegum orða­leikjum og slangur­yrðum; textinn verður fyrir vikið bráð­fyndinn og mun Hallgrímskari en Molièrskur og ekki nema gott eitt um það að segja. Hið 350 ára leikverk Molières er sennilega jafn lifandi á fjölum Þjóð­leikhússins núna á vordögum 2019 og það hlýtur að hafa verið við frum­sýningu þess í Versölum 1664. Ekki skal dæmt um þýðinguna sem slíka hér, en texti Hallgríms er ákaflega vel saminn, áheyrilegur og fer yfirleitt vel í munni leik­aranna.

Nokkuð bar þó á því að bundið mál er ekki tamt leikurum sýningarinnar. Undir­ritaður hefur margoft bent á að Þjóð­leikhúsið þurfi að taka sig á í þeim efnum. Fullyrt hefur verið að meðferð texta sé vanrækt námsefni í leiklistar­námi Lista­háskóla Íslands og þess ber greini­lega merki í texta­meðferð almennt á íslenskum leik­sviðum. Þó skal það sagt og fullyrt að Þjóð­leikhúsið virðist auðheyrilega hafa tekið sig á í þessu efni. Hér fer leik­hópurinn yfirleitt vel með textann og hann hvílir betur í munni en hefur oft áður heyrst. Loddarinn er því ekki síður eyrna­konfekt en augna og því ber að fagna. Hins vegar má benda á að það er talsverður munur á textaferð eldri og yngri leikara og það er óneitanlega staðreynd að fullkomnun í meðferð og framsögn texta verður ekki náð með því að vinna eina sýningu vel, heldur verður að vinna þrotlaust að vöndun fram­sagnar og texta­meðferðar og á að sjálfsögðu að vera hluti af vinnu við þjóð­leikhús.

En Loddarinn er ekki síður augna­konfekt en eyrna. Sean Mackaoui hefur skapað ákaflega fallega, smekklega og ekki síður fyndna leik- og búninga­mynd. Allt er dregið skýrum dráttum og smekk­legum litum. Hér má einnig njóta þess hversu hugvitsamlegt valið er á leikmunum þar sem hver hlutur þjónar tilgangi og á sinn þátt í að kynna karaktera og stuðla að framvindu sögunnar. Leikmunir, leikmynd og búningar segja ekki síður söguna en textinn og leik­ararnir og áhorf­endur eru svo sannarlega hvattir til að taka eftir því hvernig öll þessu sjónrænu atriði taka fullan þátt í heildinni. Nefnd skal einnig hógvær og falleg lýsing Ólafs Ágústs Stef­ánssonar og frábær hljóðmynd Elvars Geirs Snævars­sonar, þar sem má m.a. finna skemmtara er í kostulegu aðal­hlutverki. Það má raunar segja um alla sjónræna þætti sýningarinnar að þeir byggja á smitandi hugar­flugi og hugmynda­auðgi sem glæðir söguna sjálf­stæðu lífi og ber listrænni stjórn sýningarinnar fagmannlegt vitni. Undir­ritaður getur þó ekki stillt sig um að minna á, að það ku hafa verið Tjekhov sjálfur sem sagði, að ekki skyldi hengja slökkvitæki á vegg nema úr því væri sprautað áður en yfir lyki …

Loddari Þjóð­leikhússins á við ákveðinn vanda að stríða. Hann er sá að svo virðist sem lögn persónanna sé í ósamræmi við upphaf­lega sögu Molières. Það verður til dæmis hvergi séð með ótvíræðum hætti hvað vakir í raun fyrir Guðreði – það er eins og hann ásælist ekki það allt sem hann á endanum fær, heldur fái það bara upp í hendur af Orgeiri. Það væri kannski lagi ef ekki væri líka allsendis óljóst hvað vakir fyrir Orgeiri með því að taka Guðreð inn á heimilið og færa honum allt upp í hendur. Það er eins og Orgeir hafi frum­kvæðið í þessari sýningu þótt færi jafnvel betur á því, sögunnar vegna, að Guðreður hefði það með höndum. Sá guðsótti sem var raun­verulegt afl persóna á tímum Molières og gat rekið fólk til að gera ýmislegt sem þykir frekar ótrú­verðugt á okkar tímum hjálpar ekki þessari sýningu, hér hefði þurft að finna annað afl, fyrst farin er sú leið að setja sýninguna í óræðan nútíma.

Það er líka athyglis­vert, að ekkert er gert úr því að Orgeir hóf Guðreð upp úr sárustu örbirgð – það er sagt en hvergi sýnt og er ekki að sjá að þessi örbirgð sem Guðreður er komin úr hafi nokkuð að segja fyrir hans karakter – sem vel að merkja varðar ekki leik Hilmis Snæs heldur lögn leik­stjóra og leikara fyrir karakterinn. Í áður nefndri grein í leikskrá Loddarans verður þess ekki heldur vart að aðrar sýningar hvorki erlendis né hérlendis hafi tekið á þessum uppruna Guðreðar / Tartuffe í örbirgð, og mætti þó ugglaust styðja það rökum og gefa karakternum þau gildi að það skipti máli. Loddari Stefan Metz og Þjóð­leikhússins virðist ekki skera sig úr Tartuffehefðinni hvað það varðar.

Það er að þessu leytinu margt sem kemur fram í textanum, sem lítið eða ekkert er gert úr í þeirri túlkun sem fram kemur í leik og leik­stjórn. Fyrir vikið verða til dæmis endalok leiksins illskiljanleg þótt þau séu að sönnu áhrifarík og glæsileg með hugvitsamlegri umbreytingu á leikmynd og algerlega nýrri stöðu persónanna. En efnislega er eins og botninn detti úr og lítið verði efnislega úr þó þeirri tilraun sem hér er gerð til að færa hið klassíska verk Molières til nútíma og er vissulega allrar virðingar verð.

Þessar vanga­veltur eru þó ekki hér settar fram nema til að örva ímyndunarafl væntanlegra áhorfenda. Víst er að Loddari Stefans Metz og Þjóð­leikhússins er að mörgu leyti skemmtilegt leikhús, hin ágætasta skemmtun og vel kvöld­stundar virði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár