Atvinnuleysi í Evrópusambandinu ekki verið minna frá 2008

Efnahags­ástandið í Evrópu­sambandinu heldur áfram að batna. Atvinnu­leysi hefur ekki verið minna í níu ár og hagvöxtur ekki meiri í tíu ár.

Jean-Claude Juncker er forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Jean-Claude Juncker er for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Mynd: EPA

Efnahags­ástandið í Evrópu­sambandinu heldur áfram að batna. Atvinnu­leysi hefur ekki verið minna í níu ár og hagvöxtur ekki meiri í tíu ár.

Atvinnu­leysi innan Evrópu­sambandsins var 7,3 prósent í nóvember síðastiðnum. Það er minnsta atvinnu­leysi sem mælst hefur innan sambandsins frá því í hrun­mánuðinum október 2008, eða í níu ár. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Eurostat, hagstofu Evrópu­sambandsins.

Alls er áætlað að um 18,1 milljónir manna séu atvinnu­lausir í löndununum sem tilheyra sambandinu. Þeim fækkaði um 2,1 milljónir frá nóvember 2016. Á tíma­bilinu fækkaði atvinnu­lausum í öllum aðildar­ríkjum Evrópu­sambandsins.

Minnst er atvinnu­leysið í Tékklandi (2,5 prósent), Möltu (3,6 prósent) og Þýska­landi (3,6 prósent). Mest er það hins vegar í Grikk­landi (20,5 prósent) og á Spáni (16,7 prósent). Atvinnu­leysis minnkaði hins vegar líka mest í Grikk­landi, en það hafði verið 23,2 prósent haustið 2016.

Til saman­burðar má nefna að atvinnu­leysi í Banda­ríkjunum var 4,1 prósent í október 2017. Á Íslandi var það 2,1 prósent í nóvember sama ár.

Atvinnuleysi hjá ungu fólki enn mikið

Atvinnu­leysi á meðal ungs fólks hefur lengi verið mikið vandamál í sumum Evrópu­sambands­ríkjum, sérstak­lega Grikk­landi, Spáni og Ítalíu. Vert er að taka fram að þetta eru þau þrjú lönd heims sem talin eru vera með stærstu svörtu hagkerfin. Tölur Eurostat ná augljós­lega ekki yfir þá sem stunda svarta atvinnu­starfsemi.

Þeim einstaklingum undir 25 ára aldri sem eru atvinnu­lausir fækkaði um 429 þúsund á einu ári. Í nóvember í fyrra voru þeir 3,7 milljónir alls. Áfram sem áður er skráð atvinnu­leysi mest hjá ungu fólki í Grikk­landi (39,5 prósent), Spáni (37,9 prósent) og á Ítalíu (32,7 prósent).

Staðan meðal ungs fólks er best í Tékklandi (fimm prósent) og Þýska­landi (6,6 prósent).

Mesti vöxtur í áratug

Efnahagur Evrópu­sambands­ríkjanna hefur stöðugt verið að styrkjast á undan­förnum árum. Árið 2016 var til að mynda meiri hagvöxtur á evru­svæðinu en í Banda­ríkjunum og var það í fyrsta sinn frá huni sem það gerðist. Störfum hefur líka fjölgað mikið á örfáum árum og Grikkland, eina Evrópu­sambands­ríkið sem enn er þáttakandi í efnahags­áætlun á vegum Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins vegna efnahags­erfiðleika sem landið rataði í 2008, væntir þess að það geti „útskrifast“ úr þeirri áætlun í ár.

Spár gera ráð fyrir að hagvöxtur í Evrópu­sambands­ríkjunum hafi verið 2,3 prósent í fyrra, verði 1,9 prósent í ár. og 1,9 prósent árið 2019. Það er mesti hagvöxtur sem orðið hefur innan sambandsins í áratug. Spár gera ráð fyrir því að Bretland, sem ætlar að yfirgefa Evrópu­sambandið, muni upplifa mun minni vöxt en þann sem búist er við innan sambandsins á næstu árum. Þannig er gert ráð fyrir því að hagvöxtur í Bretlandi verði 1,1 prósent árið 2019,

Verðbólga innan evru­svæðisins mælist nú 1,4 prósent, sem er lægra en á Íslandi, þar sem verðbólga mælist 1,9 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár