Orkan okkar afhentu forseta Íslands áskorun um þriðja orkupakkann

Orkan okkar hefur skorað á forseta Íslands að bíða með að staðfesta þriðja orku­pakkann þar til Ísland hafi fengið undanþágu frá innleiðingu hans eða þjóðin hafi í þjóðar­atkvæða­greiðslu fallist á þær skuld­bindingar sem í orku­pakkanum felast.

Mynd er frá fundi Heimsýnar með Guðni Th. í mars síðastliðnum.
Mynd er frá fundi Heim­sýnar með Guðni Th. í mars síð­ast­liðnum. Mynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Full­trúar Orkunnar okkar afhentu Guðna Th. Jóhann­es­syni, for­seta Ís­lands, áskorun um þriðja orku­pakk­ann í dag. Sam­tökin skora á for­set­ann að stað­festa ekki upp­töku þriðja orku­pakk­ans nema að sam­eig­in­lega EES-­nefndin hafi veitt Íslandi und­an­þágu frá inn­leið­ingu eða að íslenska þjóðin hafi fall­ist á að und­ir­gang­ast skuld­bindingar orku­pakk­ans í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu samtak­anna

Í til­kynn­ing­unni segir að for­set­inn hafi tekið við bréfi samtak­anna með áskoruninni þar sem helstu þættir máls­ins eru raktir og hugs­an­legar afleið­ingar inn­leið­ingu orku­pakk­ans. Auk þess afhentu sam­tökin Guðn­a um­sagnir frá liðnu vori um málið ásamt nýlegri gögnum um mál­ið. Þar á meðal er skýrsla sam­tak­anna um áhrif inn­göngu Íslands í orku­sam­band ESB og minn­is­blöð Arn­ars Þórs Jóns­son­ar, hér­aðs­dóm­ara, og Tómasar Jóns­son­ar, hæstaréttar­lögmanns.

„Úr því sem komið er, sjá sam­tökin Orkan okkar því ekki önnur úrræði í stöð­unni en að skora á for­seta Íslands að bíða með að stað­festa þriðja orku­pakk­ann inn í EES-­samn­ing­inn þar til Ísland hefur fengið und­an­þágu frá inn­leið­ingu hans eða þjóðin hefur í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu fall­ist á þær skuld­bind­ingar sem í orku­pakk­anum fel­ast,“ segir í bréfi samtak­anna.

Rætt um þriðja orkupakkann á Alþingi í dag

Alþingi kom saman á ný í morgun að loknu sumar­leyfi til þess að ræða frum­vörp og þings­á­lykt­un­­ar­til­lög­ur er varða þriðja orku­pakk­ann og breyt­ingu á raf­­orku­lög­­um. Um er að ræða svo­kall­aðan þing­stubb en sam­komu­lag um þing­lok náð­ist þann 18. júní síð­ast­lið­inn. Það gerð­ist eftir að saman náð­ist milli rík­is­stjórn­ar­flokk­anna og Mið­flokks­ins um hvernig haldið yrði á frek­ari umfjöllun um þriðja orku­pakk­ann.

Til stendur að at­­kvæða­greiðsla um málið fari fram næsta mánu­dag og verður þá þingi frestað að nýju. Nýtt þing kemur saman þann 10. sept­em­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár