Zuckerberg: Það næsta sem mun breyta heiminum er Oculus Rift

Í vor keypti Facebook sýndar­veruleika­fyrirtækið Oculus Rift fyrir tvo milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur 260 milljörðum króna. Facebook er í dag metið á um 250 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 32.500 milljörðum króna.

Mark Zuckeberg, stofnandi og forstjóri Facebook, segist sann­færður um að samstarf Facebook með Palmer Luckey, stofnanda Oculus Rift, muni leiða af sér tækni­breytingu sem muni jafnast á við innreið samfélags­miðla í líf fólks. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali við Zuckerberg í september­hefti Vanity Fair, en einnig er rætt við Luckey.

Þar fer hann yfir stöðuna í tækni­geiranum, og hvernig hann sér samfélags­miðla og tækni­fyrirtæki þróast á næstu misserum. Hann segist hafa „veðjað“ á Oculus Rift þegar hann hafi kynnt sér tæknina og séð hversu magnaður veruleiki var kallaður fram með tækinu. Saga stofnandan, Palmers Luckey, er líka mögnuð frumkvöðla­saga, en hann fjár­magnaði verkefnið í fyrstu á Kickstarter síðunni og náði sér í 2,4 milljónir Bandaríkja­dala með hópfjármögnun. Þaðan fór hann í Sílikondalinn og náði í enn meira fé, áður en hann seldi fyrir­tækið, fjórum árum eftir að hann sótti sér fyrst fjármagn, fyrir tvo milljarða Bandaríkja­dala. „Markmiðið hjá mér er að fólk muni stíga inn í sýndar­veruleika þar sem það finnur fyrir því að það sé inn í herbergi með öðru fólki, raun­verulega finni fyrir því, og fái þannig að kynnast nýjum veruleika,“ segir Luckey í viðtalinu.

Zuckeberg segist sann­færður um að sýndar­veruleika­tæknin sem Oculus Rift byggi á muni opna augu fólks fyrir nýjum mögu­leikum, og þá muni fyrirtæki einnig taka þessari tækni opnum örmum.

https://www.youtube.com/watch?v=Xx6sO0Lwmr8

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár