Bretar rétta úr kútnum - hagvöxtur mældist 2,6 prósent í fyrra

Hagvöxtur í Bretlandi mældist 2,6 prósent í fyrra, sem er töluvert meira en flestir höfðu búist við, samkvæmt frásögn breska ríkis­útvarpsins BBC. Þetta er mesti hagvöxtur í Bretlandi frá árinu 2007, en árið 2013 var hagvöxturinn 1,7 prósent.

Hagvöxturinn á síðustu þremur mánuðum ársins reyndist minni en vonir stóðu til, eða 0,5 prósent. Blikuru eru á lofti í efnahags­málunum og óvissa hefur aukist.

Haft er eftir George Osborne, fjármála­ráðherra Bretlands, að þessar tölur sýni að efnahags­batinn frá því árið 2008, þegar fjármála­kreppan var sem dýpst, sé viðvarðandi og að breska hagkerfið sé á réttri leið. Hann varaði jafnframt við því að alþjóðaumhverfið væri að versna og að rekstrar­umhverfi alþjóðlegra fyrir­tækja yrði því erfiðara á næstu misserum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár