FME bregst við fullyrðingum um viðskipti Benedikts: Skýringar fullnægjandi og athugun löngu lokið

„Fjármála­eftirlitið taldi skýringar reglu­varðarins á viðskiptunum fullnægjandi,“ segir í tilkynningu á vef Fjármála­eftirlitsins vegna umræðu um viðskipti formanns Viðreisnar. Full­yrðing um „hægagang eftirlits­aðila“ í Morgun­blaðinu á ekki við rök að styðjast.

Fjármála­eftirlitið taldi skýringar reglu­varðar Nýherja á viðskiptum Benedikts Jóhannessonar, stjórnar­formanns félagsins og formanns Viðreisnar, með hlutabréf í Nýherja í nóvember fullnægjandi og lauk athugun á málinu í febrúar í byrjun þessa árs. 

Þetta kemur fram í tilkynningu sem birtist á vef FME í dag en þar er brugðist við umræðu sem farið hefur af stað í kjölfar þess að Morgun­blaðið birti aðsenda grein um viðskipti Benedikts eftir Óttar Guðjónsson, hagfræðing og framkvæmda­stjóra Lánasjóðs sveitar­félaga. Viðskipta­blaðið vitnaði í greinina undir yfir­skriftinni „Innherja­viðskipti formanns Viðreisnar“ og vakti umfjöllunin talsverða athygli á samfélags­miðlum.

Óttar er yfir­lýstur stuðnings­maður Sjálfstæðis­flokksins og birti nýlega mynd af fram­bjóðendum flokksins á Facebook-síðu sinni. Hann var tilnefndur af Illuga Gunnars­syni sem varamaður í stjórn Sinfóníu­hljóm­sveitar Íslands árið 2014 og er meðstjórnandi í Félagi sjálfstæðis­manna í Smáíbúða-, Bústaða- og Foss­vogshverfi. Fyrirsögn greinar hans í Morgun­blaðinu er „Æpandi þögn um innherja­viðskipti formanns Viðreisnar“.

Í greininni rifjar Óttar upp að þann 23. nóvember í fyrra seldu Benedikt og aðilar tengdir honum samtals 9.000.000 hluti í Nýherja á genginu 14,7 fyrir sölu­andvirðið 132.300.000 krónur. Nokkrum dögum síðar tilkynnti Nýherji að selt yrði nýtt hlutafé í Nýherja, allt að 40.000.000 hlutir eða 9,76 prósent af útistandandi hlutafé.

„Það er því ljóst að formaður stjórnar og aðilar honum tengdir seldu 2,196% af hlutafé félagsins aðeins 10 dögum áður en félagið tilkynnir hlutafjár­aukninguna,“ skrifar Óttar og fullyrðir að „hægagangur eftirlits­aðila“ sé farinn að „rýra traust á markaðnum og eftirlits­stofnunum hans“. 

Samkvæmt tilkynningu Fjármála­eftirlitsins eru hins vegar um átta mánuðir síðan athugun á viðskiptum Benedikts lauk. Voru skýringar reglu­varðar Nýherja taldar fullnægjandi. Full­yrðingin um „hægagang eftirlits­aðila“ á því ekki við rök að styðjast.  

„Liður í eftirliti Fjármála­eftirlitsins með verðbréfa­markaði er að hafa eftirlit með innherja­viðskiptum í  fjármála­gerningum sem  teknir hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfa­markaði eða markaðs­torgi fjármála­gerninga. Samkvæmt ákvæðum verðbréfa­viðskipta­laga þurfa  frum­innherjar að ganga úr skugga um að þeir búi ekki yfir innherja­upplýsingum áður en þeir eiga viðskipti með bréf útgefanda (rannsóknar­skylda),“ segir í tilkynningunni.

„Jafnframt þurfa frum­innherjar að tilkynna fyrirfram um væntanleg viðskipti til reglu­varðar en hlutverk reglu­varðar er m.a.  að veita álit á eðli upplýsinga, m.t.t. skilgreiningar á hugtakinu innherja­upplýsingar.  Fjármála­eftirlitið kallar með reglu­bundnum hætti eftir upplýsingum og gögnum er varða slík mál. Að gefnu tilefni skal þess getið að Fjármála­eftirlitið óskaði eftir upplýsingum og gögnum hjá reglu­verði Nýherja um viðskipti formanns stjórnar félagsins sem fram fóru í nóvember síðastliðnum. Fjármála­eftirlitið taldi skýringar reglu­varðarins á viðskiptunum fullnægjandi, en athugun eftirlitsins lauk í febrúar síðastliðnum.“

Benedikt Jóhannesson tjáði sig um skrif Óttars í gær:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár