Moskovitz yngsti milljarðamæringur Bandaríkjanna

Dustin Moskovitz, sem er þrítugur að aldri, er yngsti milljarðamæringur Banda­ríkjanna samkvæmt lista Forbes tíma­ritsins yfir ríkasta fólk Banda­ríkjanna undir fertugu. Moskovitz var herbergis­félagi Mark Zuckerbergs, forstjóra og stofnanda Facebook, í Harvard og starfs­maður númer þrjú hjá fyrir­tækinu. Hann er aðeins yngri en Zuckerberg, en eignir þess síðarnefnda eru metnar á 34 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur tæplega 3.800 milljörðum króna.

Moskovitz hætti hjá Facebook árið 2008 og stofnaði fyrir­tækið Asana, sem rekur verkefna­stjórnunar­hugbúnað á netinu sem hefur notið gríðar­lega vinsælda hjá litlum og meðal­stórum fyrir­tækjum um allan heim.

Moskovitz á eignir í dag sem eru metnar á 8,1 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur tæplega þúsund milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár