Zuckerberg útskýrir af hverju Facebook neyddi fólk til að ná í Messenger

Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook, hefur viðurkennt að það hafi verið „sársauka­fullt“ fyrir notendur Facebook þegar þeir voru knúnir til að niðurhala sérstöku appi fyrir skilaboða­forritið Messenger í snjall­tæki sín. Áður var hægt að nota Messenger-forritið í gegnum Facebook appið en í haust tók fyrir­tækið fyrir þá leið.

Zuckerberg sagði í samtali við The Verge að þetta hafi verið stór bón og að hann kunni að meta að notendur Facebook hafi látið sig hafa það að niðurhala nýja Messenger-appinu. Tilgangurinn hafi verið sá að búa til betri notenda­reynslu. Hvert app fyrir­tækisins á að fanga einn hlut vel í stað þess að blanda öllum notkunar­möguleikum Facebook saman í einu appi.

Facebook-appið á þannig að snúast um frétta­gátt samskipta­miðilsins (e. News Feed) og þar sem að yfir tíu milljarðar skilaboð séu send á dag úr Messenger þá fannst fyrir­tækinu það vera of löng leið fyrir neytendur að fara í gegnum frétta­gáttina inn í skilaboða­forritið. „Þú ert líklega að senda skilaboð til fólks um 15 sinnum á dag. Að þurfa að fara inn í app og fara í gegnum nokkur skref til að komast í skila­boðin skapar ákveðinn núning. Þetta er með því erfiðara sem við gerum, að taka svona ákvarðanir. Við gerum okkur grein fyrir því að við þurfum að vinna upp mikið traust og sýna fram á að sérstök skilaboða­þjónusta sé af hinu góða. Við erum með okkar hæfileika­ríkasta fólk að vinna í þessu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár