Fyrst kornið, svo bloggið, svo tístið og svo fjölmiðlarnir

Frumkvöðullinn Evan Williams er fæddur í Clarks, í Nebraska ríki árið 1972. Hann er alinn upp við bústörf og ýmis störf tengd kornakrinum í heima­högunum og sojabauna­framleiðslu. Hvernig hann leiddist út í forritun og hugmynda­vinnu ýmis konar er kannski erfitt að greina í nákvæmis­atriðum, en þetta byrjaði allt þegar hann ákvað að hætta í ríkis­háskólanum í Nebraska og fara að gera eitthvað annað með félaga sínum. Forritun var grunnurinn en ýmsar pælingar um internetið og samfélagið voru aldrei langt undan.

Sú vinna leiddi til fyrir­tækis sem margir þekkja frá árdögum bloggs-ins; Blogger.com. Fyrir­tækið náði mikilli fótfestu um allan heim og varð vísir að samfélags­miðla­hugsuninni sem síðar átti eftir verða rótin að einhverjum mögnuðustu samfélags­breytingum síðustu áratuga. Google sá að Evan og félagar voru að gera eitthvað rétt og keypti Blogger árið 2003. Evan fylgdi með og starfaði hjá Google í tvö ár. Hann hætti til þess að stofna annað fyrirtæki, ásamt fleirum, sem kallað var Twitter. Hann var forstjóri þess og stjórnar­formaður á árunum 2008 til 2010. Leiddi uppbyggingu fyrirtæksins, fjár­mögnunar­ferla og stefnu­mótun, áður en hann hætti. Twitter er risavaxið samfélagsnet á alheims­vísu í dag, með meira en 300 milljónir notenda, og er skráð á markað í Banda­ríkjunum. Even á enn 10 prósent hlut í fyrir­tækinu.

Verkefnið sem á hug hans í dag, og hann stofnaði eftir að hafa hætt hjá Twitter, heitir Medium.com. Það þykir einn fram­sæknasti fjöl­miðill heimsins, og nýtur sívaxandi vinsælda. Síðustu 15 ár hafa því verið nokkuð annasöm hjá þessum bóndasyni frá Nebraska. Það er líklega ofnotað að tala um að menn hafi breytt heiminum, en Even Williams hefur gert það. Eignir hans eru metnar á 3,1 milljarð Bandaríkja­dala í dag, eða sem nemur um 400 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár