Elísabet Indra hættir á Ríkisútvarpinu vegna óánægju

Reynd útvarps­kona sagði starfi sínu lausu í dag. Hönnu G. Sigurðar­dóttur og Sigríði Stephensen var sagt fyrirvara­laust upp störfum í síðustu viku.

Elísabet Indra Ragnars­dóttir, dagskrár­gerðarkona, hefur sagt upp störfum á Ríkis­útvarpinu.

Elísabet er reynslu­mikil útvarps­kona og hefur haft umsjón með þættinum Víðsjá um árabil. Hún hefur starfað í Efstaleiti undan­farin 14 ár en ákvað að segja starfi sínu lausu í dag.

Samkvæmt heimildum Stundarinnar tengjast starfs­lokin óánægju með starfs­andann í Efstaleiti. Þá vega uppsagnir þeirra Sigríðar Stephensen og Hönnu G. Sigurðar­dóttur í síðustu viku einnig þungt.  

Sjá einnig:
„Eins og þruma úr heiðskíru lofti“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár