„Sannleikurinn truflar ekki Miðflokkinn“

Þing­maður VG segir að þing­menn Mið­flokks­ins færi eigin for­dóma í bún­ing umhyggju fyrir börnum. „En for­dómar eru for­dómar sama hvaða hulu maður reynir að sveipa yfir þá.“

Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG.
Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

„Sann­leik­ur­inn truflar ekki Mið­flokk­inn, frekar en fyrri dag­inn, enda eru þing­menn hans bara að færa eigin for­dóma í bún­ing umhyggju fyrir börnum. En for­dómar eru for­dómar sama hvaða hulu maður reynir að sveipa yfir þá.“

Þetta skrifar þing­maður Vinstri grænna, Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, á Facebook í dag.

Tilefnið er frum­varp sem tekur á ódæmi­gerðum kynein­kennum en þing­menn greiða atkvæði um málið á Alþingi seinna í dag. Umræðu lauk í hádeg­inu.

Barnið ráði sjálft yfir eigin líkama

Kolbeinn segir að með nýjum lögum sé börnum sem fæð­ast með ódæmi­gerð kynein­kenni tryggður réttur til lík­am­legrar frið­helgi í tengslum við kynein­kenni sín og að þau eigi rétt á full­komn­ustu heil­brigð­is­þjón­ustu sem á hverjum tíma er völ á að veita.

„Hvað þýðir það? Jú, að barnið sjálft ráði yfir eigin lík­ama og hvort á honum verði gerðar breyt­ingar til að færa hann í átt að því sem við teljum dæmi­gert. Gríð­ar­lega stórt mann­rétt­inda­skref.

Auðvitað ætti maður bara að fagna og gleðj­ast yfir fram­för­unum. Og kannski er það að veita Mið­flokknum of mikla athygli að virða rang­færslur þeirra í mál­inu við­lits. En ég get bara ekki á mér setið, því ég hef undir umræðum þeirra skamm­ast mín fyrir þá stað­reynd að þessi forn­ald­ar­við­horf finn­ist á Alþingi Íslend­inga. Sem betur fer bara bundin við einn flokk­inn, en samt,“ skrifar hann.

Mikið megi þeir skammast sín

Þá telur Kolbeinn að þessi við­horf Mið­flokks­manna séu forn­ald­ar­við­horf sem þeir setji í bún­ing umhyggju þar sem þeir full­yrði að nauð­syn­legar lækn­is­að­gerðir verði ekki heim­ilar.

„Kippa sér ekk­ert upp við að í frum­varp­inu er sér­stak­lega kveðið á um að heim­ilt sé að fram­kvæma aðgerðir sem hafa var­an­legar breyt­ingar í för með sér „ef heilsu­fars­legar ástæður krefj­ast, að und­an­gengnu ítar­legu mati á nauð­syn breyt­ing­anna og afleið­ingum þeirra til skemmri og lengri tíma,“ eins og segir í frum­varp­inu. Kippa sér heldur ekki upp það að Lækna­fé­lagið, Land­læknir, barna­skurð­læknateymi Land­spít­al­ans og fleiri læknar styðji frum­varpið.“ skrifar hann.

Lýkur hann færsl­unni á því að segja að mikið megi þing­menn Mið­flokks­ins skamm­ast sín „fyrir að sparka úr sinni for­rétt­inda­stöðu í jafn við­kvæman hóp og frum­varpið fjallar um“.

Telur að rök­stuðn­ing­ur­inn sé oft og tíðum far­sa­kennd­ur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hefur sagt að þetta sé versta mál þess­arar rík­is­stjórn­ar.

„Dæmi­gert merki­miða­stjórn­mál sem er ein­göngu rætt út frá heiti og yfir­lýstum mark­miðum en ekki inni­haldi og afleið­ing­um. Þess vegna höfum við heyrt hér hástemmd öfug­mæli um mann­rétt­indi og annað sem er í raun þver­sagnir þegar þetta mál er skoð­að. Þetta snýst ekki um að vernda inter­sex fólk og þetta snýst ekki um trans fólk. Þetta snýst um að svipta börnin sjálf­sögðum og lífs­bæt­andi lækn­ingum sem fram­kvæmdar hafa verið með góðum árangri, jafn­vel ára­tugum sam­an,“ sagði hann í umræðum á Alþingi fyrr í vik­unni.

Þá telur hann að rök­stuðn­ing­ur­inn sé oft og tíðum far­sa­kennd­ur og að jafn­vel sé vísað í alþjóða­sátt­mála gegn pynt­ingum til að rétt­læta það að börn fái ekki heil­brigð­is­þjón­ustu.

„Það er með þessu verði að gefa til kynna að mörg hund­ruð for­eldrar og læknar hafa á und­an­förnum árum og ára­tugum brotið rétt á börnum sínum með því að veita þeim aðgerðir eða aðrar lækn­ingar sem hafa veru­lega bætt lífs­gæði þeirra fyrir lífs­tíð. Og það er ótrú­legt að svona forn­eskju­legt og öfga­fullt mál skuli keyrt hér í gegn á alþingi árið 2020,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár