„Hvers lags þvættingur er þetta, háttvirtur þingmaður?“

Ekki tóku þing­menn vel í orð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, í umræðum um aðkvæða­greiðslu um kyn­rænt sjálf­ræði í dag.

Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er bein­línis hörmu­legt að hlusta hér á mál­flutn­ing hátt­virts þing­manns og for­manns Mið­flokks­ins, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.“

Þannig hófst ræða Páls Magn­ús­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í umræðum um atkvæða­greiðslu um kyn­rænt sjálf­ræði á Alþingi í dag.

„Það stendur upp úr honum, hátt­virtum þing­manni, hér bunan um það að þetta snú­ist ekki um mann­rétt­indi. Þetta snú­ist ekki um frelsi. Þetta séu merki­miða­stjórn­mál. Spurðu fólkið sem í hlut á, hátt­virtur þing­maður, hvort þetta séu mann­rétt­indi, frels­is­mál eða merki­miða­stjórn­mál,“ sagði Páll.

„Versta mál“ þessarar ríkisstjórnar

Sig­mundur Davíð hafði komið í pontu nokkru áður og sagt að þetta væri versta mál þess­arar rík­is­stjórnar. „Dæmigert merki­miða­stjórn­mál sem er ein­göngu rætt út frá heiti og yfir­lýstum mark­miðum en ekki inni­haldi og afleið­ingum. Þess vegna höfum við heyrt hér hástemmd öfug­mæli um mann­rétt­indi og annað sem er í raun þver­sagnir þegar þetta mál er skoðað. Þetta snýst ekki um að vernda inter­sex fólk og þetta snýst ekki um trans fólk. Þetta snýst um að svipta börnin sjálf­sögðum og lífs­bæt­andi lækn­ingum sem fram­kvæmdar hafa verið með góðum árangri, jafn­vel ára­tugum saman.

Rök­stuðn­ing­ur­inn er oft á tíðum far­sa­kenndur, vísað jafn­vel í alþjóða­sátt­mála gegn pynt­ingum til að rétt­læta það að börn fái ekki heil­brigð­is­þjón­ustu. Það er með þessu verði að gefa til kynna að mörg hund­ruð for­eldrar og læknar hafa á und­an­förnum árum og ára­tugum brotið rétt á börnum sínum með því að veita þeim aðgerðir eða aðrar lækn­ingar sem hafa veru­lega bætt lífs­gæði þeirra fyrir lífs­tíð. Og það er ótrú­legt að svona forn­eskju­legt og öfga­fullt mál skuli keyrt hér í gegn á alþingi árið 2020,“ sagði Sig­mundur Davíð.

Samþykkir ekki að verið sé að meina börnum læknishjálp

Páll var eins og áður segir ekki sam­mála Sigmundi Davið. „Þvætt­ing­ur­inn um það að það sé verið að meina börnum um lækn­is­hjálp, er það það sem Lækna­fé­lagið mælir ein­róma með að verði gert? Lækna­fé­lag Íslands sem mælir með sam­þykkt þessa frum­varps. Sér­fræð­inga­hóp­ur­inn, barna­skurð­lækn­arnir, barna­lækn­arnir á Land­spít­al­anum. Eru þeir að mæla með því að börnum verði meinað um lækn­is­að­stoð? Hvers lags þvætt­ingur er þetta, hátt­virtur þing­maður?“

Uppskar þing­mað­ur­inn góðar und­ir­tektir í þing­sal við þessi orð sín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár