Russell Crowe býr til væntingar hjá stuðningsmönnum Leeds

Hollywood-leikarinn Russell Crowe, sem er með 1,6 milljónir fylgjenda á Twitter, kveikti væntinganeista hjá stuðnings­mönnum enska knattspyrnu­félagsins Leeds United þegar hann gaf í skyn á Twitter að hann hefði áhuga á því að koma að kaupum á félaginu. Þetta fornfræga félag hefur átt í miklum fjárhags­erfiðleikum undan­farin ár og hefur ekki tekist að byggja upp sterkt lið. Það er nú í 14. sæti Championship deildarinnar, það er næst efstu deildar.

Andrew Umbers, stjórnar­formaður Leeds, segir félagið ekki vera til sölu en stuðnings­menn Leeds, í þúsunda­tali, hafa hvatt Crowe til þess að koma félaginu til bjargar.

Svo virðist sem litlar líkur séu á því að Crowe muni kaupa félagið, en ljóst er þó að hann er undir miklum þrýstingi um að gera slíkt. Í það minnsta á internetinu.

“@Samwild90: @russellcrowe please buy leeds. In need of help!!” Anybody else think this is a good idea?

— Russell Crowe (@russellcrowe) February 25, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár