Gylfi ráðinn sem ráðgjafi við mótun ráðuneytis Ásmundar Einars

Fyrr­ver­andi for­seti Alþýðu­sam­bands­ins hefur verið ráð­inn sem tíma­bund­inn ráð­gjafi við mótun fram­tíð­ar­skipu­lags mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Gylfi Arnbjörnsson hefur verið fenginn til ráðgjafarstarfa í tengslum við mótun framtíðarskipulags mennta- og barnamálaráðuneytisins.
Gylfi Arn­björns­son hefur verið feng­inn til ráð­gjaf­ar­starfa í tengslum við mótun fram­tíð­ar­skipu­lags mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Gylfi Arn­björns­son, fyrr­ver­andi for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, hefur verið feng­inn til starfa sem tíma­bund­inn ráð­gjafi við mótun fram­tíð­ar­skipu­lags mennta- og barna­mála­ráðu­neytis, sem Ásmundur Einar Daðason situr nú í.

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu stjórn­valda mun hann m.a. vinna með starfs­mönnum stjórn­ar­ráðs­ins að yfir­færslu verk­efna, meðal ann­ars frá félags­mála­ráðu­neyti. Töluverð upp­stokkun er að verða á verk­efnum innan stjórn­ar­ráðs­ins sam­fara myndun nýrrar rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur.

Mennta- og barna­mála­ráðu­neyti mun fara með mál­efni skóla og fræðslu, æsku­lýðs- og íþrótta­mál auk þess sem mál­efni barna og barna­verndar flytj­ast til ráðu­neyt­is­ins. Í til­kynn­ingu stjórn­valda segir að með sam­ein­ingu þess­ara mála­flokka sé „lagt upp með að gefa hverju þess­ara mál­efna aukið vægi í stjórn­kerf­inu.“

Gylfi er feng­inn inn sem tíma­bund­inn ráð­gjafi við mótun skipu­lags­ins sem áður segir, en í upp­hafi mán­aðar var sagt frá því að Ásdís Halla Braga­dóttir hefði verið fengin inn sem verk­efna­stjóri til þess að und­ir­búa nýtt ráðu­neyti vís­inda, iðn­aðar og nýsköp­unar, sem verður í höndum Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur á kjör­tíma­bil­inu.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að Gylfi hafi fjöl­þætta stjórn­un­ar­reynslu, en hann lauk meistara­gráðu í hag­fræði, stjórnun og opin­berri stjórn­sýslu frá Versl­un­ar­há­skól­anum í Kaup­manna­höfn.

Hann var fram­kvæmda­stjóri Eign­ar­halds­fé­lags­ins Alþýðu­bank­inn hf., og síðar fram­kvæmda­stjóri ASÍ áður en hann varð for­seti ASÍ í heilan ára­tug frá 2008 til 2018.

Gylfi hefur frá því í apríl 2020 verið verk­efna­stjóri í átaks­verk­efnum stjórn­valda til að mæta þeim áskor­unum sem vinnu­mark­að­ur­inn stóð frammi fyrir vegna auk­ins atvinnu­leysis í kjöl­far Covid-19 far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár