Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur reglulega saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag. Aðgerðir ríkis­stjórnarinnar og kjara­málin eru ekki á listanum, en þó eru þar ýmsir mikil­vægir hlutir.


  1. Búist er við því að Sepp Blatter verði endur­kjörinn forseti Alþjóða­knattspyrnu­sambandsins FIFA í dag, þrátt fyrir spillingar­málin sem upp eru komin innan sambandsins. Kosið er í dag milli Blatter og prinsins Ali frá Jórdaníu.

  2. Rússar eru sagðir hafa flutt herlið og skrið­dreka í stórum stíl að landa­mærunum við Úkraínu, en þeir neita því að það tengist áætlunum um að ráðast inn í Úkraínu.

  3. Christine Lagarde, framkvæmda­stjóri Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins, gaf til kynna í gær að viðræður við Grikki um samkomulag um neyðarlán til þeirra gangi ekki eins hratt fyrir sig og Grikkir hafa gefið í skyn. Næsta stóra endur­greiðsla af lánum Grikkja er 5. júní.

  4. Hita­bylgja í Indlandi, þar sem hita­stigið hefur náð tæpum 50 gráðum, hefur nú orðið um 1500 manns að bana á einni viku.

  5. Vladimír Pútín hefur ákveðið að dauði rússneskra hermanna á friðar­tímum skuli vera hernaðar­leyndarmál. að verði því brot á lögum að veita upplýsingar um hermenn sem deyja í "sérstökum aðgerðum."

  6. Íslamska ríkið er sagt hafa sett myndir á netið af sögufrægu borginni Palmyra, sem samtökin hafa náð á sitt vald. Myndirnar gefa til kynna að fornar rústir borgarinnar hafi ekki verið eyði­lagðar.

  7. Samþykkt hafa verið lög í Suður-Kóeru sem banna leigubíla­þjónustur eins og Uber.

  8. Yfir 130 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín á japönsku eyjunni Kuchinoerabujima eftir að eldgos hófst þar skyndi­lega í dag.

  9. Bandalag uppreisnar­manna í Sýrlandi, undir forystu Al-Nusra Front, sem eru samtök tengd Al-Kaída, hefur náð völdum í síðustu borginni í Idlib-héraði sem var á valdi stjórn­valda.

  10. Leiðtogi nígerísku hryðjuverka­samtakanna Boko Haram hefur verið ákærður fyrir hryðju­verk og glæpi gegn mannkyni á Spáni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár