Hafið er bæði fallegt og grimmt

Þröstur Leó Gunn­ars­son ætl­aði að hætta að leika og fór á sjó­inn. Þá sökk bát­ur­inn og hann var atvinnu­laus, þar til honum var boðið hlut­verk á sviði. Nú leikur hann aðal­hlut­verkið í Hafinu sem verður frum­sýnt annan í jólum, þar sem fjöl­skyldu­mál og kvóti koma við sögu. Að hafa verið við dauð­ans dyr þegar bát­ur­inn sökk mót­aði sýn hans á lífið – og hafið.

Langlíf umræða
Langlíf umræða Þegar Hafið var skrifað var mikil umræða í sam­fé­lag­inu vegna hrær­inga sem tengd­ust kvót­anum, eins og í dag. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Við byrj­uðum að æfa leik­ritið fyrir rúmum mán­uði en ég fékk hand­ritið fyrir löngu síðan,“ segir Þröstur Leó Gunn­ars­son en leik­ritið verður frum­sýnt annan í jólum.

„Ég leik útgerð­ar­mann­inn Þórð sem er karl af gamla skól­anum. Hann byrj­aði með tvær hendur tómar í sjáv­ar­þorpi og er búinn að byggja upp fyr­ir­tækið sitt. Síðan var farið að úthluta kvóta og litlu fyr­ir­tækin urðu undir og þau stóru keyptu þau upp eins og gerð­ist í raun og veru.

Rekst­ur­inn gengur ekki vel en Þórður hugsar um byggð­ar­lagið en börnin hans vilja að hann selji fyr­ir­tækið. Hann spyr þau þá hvort þau hafi talað við fólkið í þorp­inu og útskýrt fyrir því hvers vegna þau vilja taka frá því lífs­björg­ina sem er þetta fyr­ir­tæki. Þórður er harður í horn að taka. Þetta er ekk­ert auð­veldur karakter þannig séð.“

Þröstur Leó ólst upp á Bíldudal og hefur verið mikið á sjó.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár