Sneiða hjá Danmörku

Flótta­fólk sem kemur til Þýska­lands og ætlar áfram til Svíþjóðar, Noregs eða Finnlands þarf ekki að fara um Danmörku til að komast á áfanga­stað. Í gær fór fjöldi fólks með ferjum frá Rostock og Kíl til Gauta­borgar og Trelleborgar við Eyrarsund. Á þennan hátt sleppur fólk við að fara um danskt landsvæði á leið sinni. Nokkur hundruð Sýrlendingar voru um borð í ferjum sem héldu frá Þýska­landi til Svíþjóðar í gærkvöldi.

Eins og mikið hefur verið fjallað um í fréttum undan­farna daga hefur talsvert á fjórða þúsund flótta­fólks, einkum frá Sýrlandi en einnig fleiri löndum, farið frá Þýska­landi yfir landa­mærin til Danmerkur en ekki komist lengra. Danska lögreglan hefur stöðvað för þess, ýmist í Padborg á Suður-Jótlandi eða í Rødby á Lálandi. Danska lögreglan var engan veginn búin undir komu þessa mikla fjölda og enginn virtist almennilega vita hvað ætti að gera. Samkvæmt Dyflinarreglugerðinni á það fólk sem kemur frá Þýska­landi þegar að vera skráð, annað hvort þar eða í öðru landi en sú hefur ekki reynst raunin. Þjóð­verjar ákváðu sem kunnugt er að hleypa þúsundum flótta­fólks inn í landið án þess að skráning færi fram. Hluti þessa hóps hefur svo komið til Danmerkur en verið stöðvaður þar.

Flótta­fólk á göngu í Danmörku, til að reyna að komast til Svíþjóðar, fyrr í vikunni. MYND: EPA

Ringulreið


Ringul­reið lýsir best ástand­inu sem ríkt hefur við dönsku landa­mærin síðan um helgi. Tæplega 700 manns úr þessum hópi (vel á fjórða þús­und) sem kom um helg­ina vilja gjarna setj­ast að í Danmörku. Mál þess fólks fer ákveðna leið. Stærsti hluti hóps­ins vildi hins vegar ekki láta skrá sig hér í Danmörku og þá tók við ákveðið þrá­tefli. Sumir féllust á að láta fyr­ir­ber­ast í íþrótta- og skóla­húsum við landa­mærin, án þess að vera skráðir, aðrir neit­uðu að yfir­gefa járn­braut­ar­lest­irnar sem stóðu á braut­ar­stöðvum, enn aðrir tóku ein­fald­lega til fót­anna og héldu áfram ferð­inni á tveimur jafn­fljótum.

Flóttafólk á göngu í Danmörku, til að reyna að komast til Svíþjóðar, fyrr í vikunni. MYND: EPA
Flótta­fólk á göngu í Danmörku, til að reyna að kom­ast til Sví­þjóðar, fyrr í vik­unni. MYND: EPA

Í gærmorgun gerðist svo það að lögreglan hvarf á braut, ef svo mætti segja og allir þeir sem hafst höfðu við í járn­brautar­lestunum og íþrótta­húsunum hurfu á braut. Margir með kunningjum eða sjálfboða­liðum sem fjölmennt höfðu á landa­mærunum og biðu þar átekta. Þegar spurt var hvers vegna lögreglan hefði svo skyndi­lega snúið við blaðinu voru svörin þau að lög heimili ekki að erlendum einstaklingi sé haldið lengur en 72 klukku­stundir án þess að úrskurðað sé með einhverjum hætti í málum viðkomandi. Þess vegna hafi lögreglan ekki átt annarra kosta völ en láta flótta­fólkið afskipta­laust, sleppa því með öðrum orðum. Danskir fjöl­miðlar segja stjórn­málamennina hafa talað út og suður, forsætis­ráðherrann hafi sagt eitt, innflytjenda­ráðherrann annað og lögreglan orðið að taka ákvarðanir án þess að fá stuðning eða ráðleggingar ráðamanna. Fjöl­miðlarnir eru þó sammála um að lögreglan hafi staðið sig vel við erfiðar aðstæður. Í gærkvöld var allt með kyrrum kjörum bæði í Rødby og Padborg og lögreglu­þjónn á vakt í Rødby sagði að þar væri talsverður fjöldi sjálfboða­liða á bílum en hins vegar ekkert flótta­fólk.

Svíar ósáttir við Dani


Svíar eru síður en svo ánægðir með að Danir hleypi fólki gegnum landið án skrán­ingar. Sænski for­sæt­is­ráð­herr­ann, Stefan Löfven lýsti undrun sinni yfir þeirri ákvörðun Dana og sagði að þetta gengi þvert gegn því sem danski for­sæt­is­ráð­herr­ann, Lars Løkke Rasmus­sen, hefði sagt. Lars Løkke hefur hins­vegar sagt að Danir hafi ekki átt ann­arra kosta völ en leyfa fólki að fara sína leið en ítrek­aði jafn­framt að finna yrði sam­eig­in­lega evr­ópska lausn.

Þurfa ekki að fara um Danmörku


Í gær var eins og sumir úr hópi flótta­fólks hefðu skyndi­lega áttað sig á því að ekki væri nauð­syn­legt fyrir þá að fara um Danmörku. Það ganga, eða sigla rétt­ara sagt, ferjur milli Þýska­lands og Sví­þjóðar, til dæmis frá Rostock og Kíl til Gauta­borgar og Trelle­borgar. Þeir sem sigla með þessum ferjum stíga því ekki fæti á danska grund. Í gær völdu nokkur hund­ruð flótta­menn þennan kost. Skipa­fé­lögin sem halda úti ferjum á þessum leiðum búast við mik­illi fjölgun far­þega á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár