ISIS-liðar skemma og eyðileggja mörg þúsund ára fornmuni

Liðsmenn Íslamska ríkisins (ISIS) hafa að undan­förnu eyðilagt fornmuni á lista­söfnum í borginni Mosul, sem þykja með merkilegustu og verð­mætustu uppruna­legu listmunum sem til eru í veröldinni. Í mynda­bandi sem Channel 4 birtir sjást liðsmenn ISIS eyði­leggja listaverk með sleggju.

Sum verkanna eru talin allt að þrjú þúsund ára gömul. Sveitir Íslamska ríkisins hafa haft yfirráð í Mosul síðan í júní á síðasta ári, og farið um svæðið með gengdar­lausu ofbeldi gagnvart fólki sem samtökin telja að sé ekki hliðhollt þeim.

Nýlega var greint frá því að liðsmenn samtak­anna hefðu brennt yfir átta þúsund forn handrit. Á safninu í Mosul eru taldir vera um 1.700 uppruna­legir fornmunir sem mögulega eru í hættu á því að verða eyði­lagðir af liðs­mönnum ISIS, segir í frétt CNN.

Elenor Robson, formaður bresku stofnunarinnar um írösk fræði, segir í viðtali við CNN að mun fleiri upprunaleg verk séu á safninu í Mosul en hún hafi haldið. Skemmdar­verkin eru fordæmd og þau sögð vera árás á sögu Íraks og mikils­verða sögu Mið-Austur­landa og heimsins. Irin Bokova, framkvæmda­stjóri UNESCO, segir eyði­legginguna vera miklu meira en bara skemmdar­verk, heldur líka atburð sem vinni gegn öryggis­tilfinningu fólks í Írak.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár