„Við höfum verið með skynsamlegar aðgerðir“

For­sæt­is­ráð­herra og for­maður Við­reisnar ræddu nýja þjóð­hags­spá OECD á þingi í dag. Ráð­herr­ann sagð­ist hafa fulla trú á því að Seðla­bank­inn væri með mjög styrka stjórn á pen­inga­málum hér á landi.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Það er mat Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra að stuðn­ingur stjórn­valda í COVID-far­aldr­inum hafi ratað þangað sem hann átti að rata. „Við höfum verið með skyn­sam­legar aðgerðir.“ Þetta sagði hún í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag en Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, spurði hana hvað henni fynd­ist um nýja spá Efnahags- og fram­fara­stofn­unar (OECD).

Kjarninn fjall­aði um spána fyrr í dag en þar kemur fram að stofn­unin búist við hæg­ari efna­hags­bata hér á landi heldur en Seðla­bank­inn spáði í síð­asta hefti Pen­inga­mála. Samkvæmt sam­tök­unum verður Ísland hæg­ast allra þró­aðra ríkja í að end­ur­heimta fyrri efna­hags­styrk.

Þing­mað­ur­inn sagði að auð­vitað væri það ákveðið áhyggju­efni. Samkvæmt spánni myndu Banda­ríkin, Írland, Japan og Noregur end­ur­heimta sama efna­hags­styrk og fyrir far­ald­ur­inn á næstu mán­uðum. Ísland næði hins vegar ekki þeim áfanga fyrr en eftir tvö ár sam­kvæmt OECD, þ.e. á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2023.

„Í sömu skýrslu eru íslensk stjórn­völd hvött til að beina stuðn­ings­að­gerðum sínum beint að þeim sem mest þurfa á að halda, að fara ekki í almennar aðgerðir heldur sér­tækar. Á sama tíma fáum við fréttir af því að allir við­skipta­bankar lands­ins hafi hækkað vexti á hús­næð­is­lánum í vik­unni. Það hefur ekki náðst að koma böndum á verð­bólg­una og geng­is­stöð­ug­leik­inn er enn og aftur undir,“ sagði hún.

Spurði Þor­gerður Katrín hvert við­horf for­sæt­is­ráð­herra væri til þess­arar spár OECD; hvernig hún horfði á hana, hvort hún væri sam­mála henni um þá mynd sem verið væri að draga fram og hvort hún ætl­aði með ein­hverjum hætti að bregð­ast við þeim ábend­ingum sem fram hafa komið.

Vill að viðspyrnan verði hraðari en OECD spáir

Katrín svar­aði og sagð­ist telja að stjórn­völd hefðu einmitt verið að fara úr hinum almennu aðgerðum yfir í sér­tæk­ari. „Ef við skoðum fer­il­inn frá fyrstu aðgerðum yfir í nýj­ustu aðgerðir hefur æ meiri þungi færst yfir í þá áherslu að skapa störf og styðja betur við atvinnu­leit­endur. Það sjáum við eins og á átak­inu okkar Hefjum störf, sem hefur gengið vel og fjöldi fólks er núna að fá störf sem hefur verið atvinnu­laust í 12 mán­uði eða lengur, sem munar auð­vitað gríð­ar­lega mikið um. Við höfum verið að hækka atvinnu­leys­is­bætur og koma sér­stak­lega til móts við barna­fólk.“

Allt mætti þetta kalla sér­tækar aðgerðir til þess að takast á við atvinnu­leysið sem Katrín telur vera brýn­asta úrlausn­ar­efnið í efna­hags­lífi þjóð­ar­innar.

„Annað dæmi sem ég vil nefna í þessu, af því að þetta eru kannski hinar bein­hörðu vinnu­mark­aðs­að­gerðir, er að ég hef þá trú að þær aðgerðir sem ráð­ist var í til að styðja betur við fyr­ir­tæki í þekk­ing­ar­geira og nýsköpun séu þegar farnar að skila sér. Við sjáum það til að mynda á auk­inni fjár­fest­ingu, einka­fjár­fest­ingu, í nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum á Íslandi, sem eru mjög gleði­legar fréttir og getur orðið mjög mik­il­vægur þáttur í við­spyrn­unni.

Það má deila um hvort aðgerðir okkar hafi verið of almennar framan af. Þær voru auð­vitað háðar ýmsum tak­mörk­unum, þannig að þegar við gerum þetta upp og skoðum stuðn­ing­inn við fyr­ir­tækin þá sést það auð­vitað að vegna ákvæða um tekju­fall hefur mik­ill meiri hluti þeirra sem notið hafa stuðn­ings verið ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækin, sem sann­an­lega hafa farið verst út úr þess­ari kreppu af aug­ljósum ástæðum. Þannig að mitt mat er að stuðn­ing­ur­inn hafi ratað þangað sem hann átti að rata. Við höfum verið með skyn­sam­legar aðgerðir. Ég held hins vegar að það sem við þurfum að gera til lengri tíma og horfa á til að tryggja að þessi spá ræt­ist ekki sé að við­spyrnan verði hrað­ari en þarna er spáð,“ sagði hún.

Telur viðbragðsáætlun ríkisstjórnarinnar varðandi innviðafjárfestingar of hæga

Þor­gerður Katrín steig aftur í pontu og sagði að þetta væri allt rétt – og gott og blessað. „En það er samt engu að síður þannig að OECD dregur þetta mjög skýrt fram; það er ekk­ert þróað ríki innan OECD sem verður jafn lengi að end­ur­heimta fyrri efna­hags­styrk. Það er ekki stjórn­ar­and­staðan sem segir þetta, það er OECD sem dregur þetta fram. Þrátt fyrir vel mein­andi og margar ágæt­is­að­gerðir þá er það nákvæm­lega það sem við bentum á í byrjun, að þær þyrftu að vera sér­tæk­ari og miða við þá hópa og þau fyr­ir­tæki sem eiga við mestan vanda að glíma.“

Benti hún á að sam­dráttur væri í inn­viða­fjár­fest­ingum. „Ein­hverra hluta vegna var við­bragðs­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar varð­andi inn­viða­fjár­fest­ingar mjög hæg. Þunginn og seina­gang­ur­inn var mjög mik­ill. Af hverju var ekki farið af stað í allar þessar fram­kvæmdir sem voru til­búnar? Það er það sem er erfitt að horfa upp á,“ sagði hún og spurði ráð­herr­ann hvernig hún sæi fyrir sér umhverfi fyrir nýsköp­unar- og sprota­fyr­ir­tæki þegar kæmi að geng­is­stöð­ug­leik­anum. „Það er stærsta hindr­unin fyrir nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækin til að fá erlendar fjár­fest­ingar ef við erum með þessa von­lausu krónu.“

Hefur fulla trú á Seðlabankanum

Katrín svar­aði í annað sinn og benti á að fjár­fest­ing rík­is­ins hefði verið að aukast jafnt og þétt. „Ég held að einnig verði að horfa til þess að eftir fyrsta áfallið héldu sveit­ar­fé­lögin að sér höndum. Hins vegar virð­ast þau koma tölu­vert betur út úr þessu efna­hags­á­falli en talið var fyrir fram. Þegar við skoðum tekjur þeirra og nið­ur­stöðu í lok árs koma sveit­ar­fé­lögin mun betur út úr áfall­inu en þau töldu fyrir fram. Þar liggur auð­vitað hluti af hinni opin­beru fjár­fest­ingu. Þar sjáum við hins vegar fjár­fest­ingu rík­is­ins aukast og var kom­inn tími til. Það eru mjög mik­il­væg fjár­fest­ing­ar­verk­efni sem nú er verið að ráð­ast í sem skipta máli, ekki bara efna­hags­lega heldur líka sam­fé­lags­lega.“

Sagðist hún hafa fulla trú á því að Seðla­bank­inn, sem hefði haldið mjög vel á málum í gegnum þessa kreppu, væri með mjög styrka stjórn á pen­inga­stefn­unni. „Vissu­lega er vaxta­hækkun núna, sem breytir því samt ekki að vextir eru sögu­lega lágir. Ég held að það skipti máli að við við­ur­kennum það hér að það hefur gengið gríð­ar­lega vel að halda utan um pen­inga­stefn­una í gegnum þennan far­aldur,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár