OECD svartsýnni en Seðlabankinn en sammála Íslandsbanka

Samkvæmt nýrri þjóð­hags­spá OECD mun Ísland ekki ná fyrri efna­hags­styrk fyrr en eftir tvö ár, síð­ast allra þró­aðra ríkja. Spáin er í takti við nýj­ustu þjóð­hags­spá Íslands­banka, en nokkuð svart­sýnni en spár Seðla­bank­ans.

Mathias Cormann, nýr aðalritari OECD
Mathias Cormann, nýr aðal­rit­ari OECD Mynd: EPA

Efnahags- og fram­fara­stofn­unin (OECD) býst við hæg­ari efna­hags­bata hér á landi í nýju þjóð­hags­spánni sinni heldur en Seðla­bank­inn spáði í síð­asta hefti Pen­inga­mála. Samkvæmt sam­tök­unum verður Ísland hæg­ast allra þró­aðra ríkja í að end­ur­heimta fyrri efna­hags­styrk.

Samtökin gera ráð fyrir að hag­vöxtur hér á landi muni ná 2,8 pró­sentum í ár og 4,7 pró­sentum á næsta ári. Þetta er nokkurn veg­inn í takt við þjóð­hags­spá Íslands­banka, sem kom út í síð­ustu viku, en þar var gert ráð fyrir 2,7 pró­senta hag­vexti í ár og 4,9 pró­senta vexti á næsta ári.

Seðla­bank­inn var þó nokkuð bjart­sýnni í nýjasta hefti Pen­inga­mála, en þar bjóst bank­inn við því að hag­vöxt­ur­inn yrði yfir þremur pró­sentum í ár og yfir fimm pró­sentum á næsta ári. Mestu munar þar á einka­neysl­unni, en Seðla­bank­inn gerir ráð fyrir að hann muni vaxa helm­ingi í ár heldur en Íslands­banki og OECD.

Samkvæmt OECD er efna­hags­við­spyrnan hér á landi bundin mörgum óvissu­þáttum, þar sem ferða­þjón­ustan væri háð efna­hags­á­stand­inu á heims­vísu og sjáv­ar­út­veg­ur­inn væri við­kvæmur fyrir afla­bresti.

Í spánni var sagt að ýmsar kerf­is­breyt­ingar gætu hjálpað til við að end­ur­raða vinnu­afli í arð­bærar atvinnu­greinar og stuðlað að hag­vexti sem myndi gagn­ast öllum. Þá töldu sam­tökin einnig að aukin sam­keppni í bygg­ing­ar­iðn­að­inum og ferða­þjón­ust­unni, auk komu erlendra fyr­ir­tækja með mik­illi stærð­ar­hag­kvæmi, gæti hraðað fyrir tækni­breyt­ingum og fjöl­breytni í hag­kerf­inu. Einnig gæti bjögun á vinnu­mark­aði minnkað með auknu sam­starfi háskól­anna við atvinnu­lífið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár