46 milljarðamæringar undir fertugu, tæknifólk áberandi

46 af 1.826 milljarðamæringum á nýjum lista Forbes yfir ríkustu einstaklingana eru undir fertugu. Um helmingur þessara 46 einstaklinga hefur auðgast í gegnum tækni­nýjungar.

Milljarðamæringarnir 46 eiga samanlagt 152,8 milljarða dala, eða að meðaltali 3,3 milljarða dala hver.

Ríkasti milljarðamæringurinn undir fertugu er Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi Facebook. Eignir hans eru metnar á 33,4 milljarða Bandaríkja­dala, eða tæplega 4.500 milljarða íslenskra króna. Hann er í sextánda sæti á heildar­listanum, en þetta er í fyrsta sinn sem hann er á meðal tuttugu ríkustu einstaklinganna á lista Forbes. Zuckerberg er þrítugur en kom í fyrsta skipti inn á listann þegar hann var 23 ára gamall.

Evan Spiegel og Bobby Murphy stofnuðu Snapchat. (Mynd/EPA)

Evan Spiegel og Bobby Murphy stofnuðu Snapchat. (Mynd/EPA)
Evan Spiegel og Bobby Murphy stofn­uðu Snapchat. (Mynd/EPA)

Stofn­endur Airbnb eru á listanum sem og stofn­endur Uber, GoPro og Whatsapp. Yngsti milljarðamæringurinn á listanum er forstjóri Snapchat, Evan Spiegel. Hann er 24 ára, en stofnendurnir tveir, Spiegel og Bobby Murphy, koma báðir nýir inn á listann.

Níu konur eru meðal þessara 46 milljarðamæringa undir fertugu, eða tæplega 20 prósent. Það er betra hlutfall kvenna en er á heildar­listanum, þar sem tæplega ellefu prósent einstaklinga á listanum eru konur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár