Ekki sama hvernig flísarnar snúa

Það er aldeilis ekki sama hvernig gólf­flísar snúa. Því hefur safnaðar­nefndin í Glumsø, lítilli sókn á Sjálandi, fengið að kynnast. Danska menningar­mála­stofnunin hefur fyrir­skipað að flísar sem búið var að leggja í safnaðar­heimili kirkjunnar verði teknar upp og þær lagðar aftur. Það kostar stórfé, sem söfnuðurinn á ekki til.

Flísar voru fyrst lagðar á gólf safnaðar­heimilisins árið 1977 þegar gerðar voru miklar endur­bætur á prest­setrinu, sem að hluta var friðað árið 1954 og heyrir af þeim sökum undir Menningar­mála­stofnunina hvað breytingar varðar. Fyrir tveimur árum ætlaði safnaðar­nefndin aftur að ráðast í aðgerðir, þar á meðal var ætlunin að einangra gólfið í safnaðar­heimilinu. Flísarnar sem nefndin valdi þótti Menningar­mála­stofnuninni ekki hæfa húsinu og því var ákveðið að kaupa annars konar, og mun dýrari flísar, sem Menningar­mála­stofnunin lagði blessun sína yfir. Það tók stofnunina hinsvegar langan tíma að senda "blessunar" bréfið og vegna þess að safnaðar­nefndin var komin í tímaþröng með verkið var bæði búið að kaupa flísarnar og láta leggja þær á gólfið þegar bréf Menningar­mála­stofnunarinnar barst nefndinni haustið 2013.

Þótt stofnunin væri ánægð með nýju flísarnar var annað upp á teningnum hvað lagninguna varðaði. Flísarnar voru semsé lagðar lagðar í 45 gráður á horn­réttan flöt rýmisins "diagonalt" en ekki hornrétt. Þetta gat Menningar­mála­stofnunin ekki með nokkru móti samþykkt og fyrir­skipaði að flísarnar skyldu teknar upp og lagðar þannig að þær lægju hornrétt. Í bréfi til safnaðar­nefndarinnar sagði stofnunin að flísarnar "virki framandi í rýminu" og það gæti ekki gengið.

Formaður safnaðar­nefndarinnar, Leif von Gersdorff, sagði í viðtali við Kristeligt Dagblad að ef taka flísarnar upp og leggja á nýjan leik myndi kosta stórfé. Fé sem söfnuðurinn á ekki til. Biskupinn í Hróarskeldu­umdæmi tók í sama streng og kvaðst undrast afstöðu Menningar­mála­stofnunarinnar og bendir á að hér sé ekki um gamalt gólf að ræða sem hafi af þeim sökum sérstakt gildi.

Þar að auki hafi Menningar­mála­stofnunin ekki svarað fyrir­spurnum varðandi flísarnar fyrr en seint og um síðir, þrátt fyrir að ítrekað hafi verið spurt. "Vegna þess að nota þurfti húsið var ekki hægt að bíða endalaust," sagði biskup. Menningar­mála­stofnunin viðurkennir að dregist hafa að svara erindi safnaðar­nefndarinnar en það sé ekki sama og samþykki.

Nú, tveimur árum síðar eru flísarnar enn á gólfi safnaðar­heimilisins. Menningar­mála­stofnunin situr við sinn keip, flísarnar skulu teknar upp og lagðar hornrétt, safnaðar­nefndin vill ekki una þeim úrskurði og hótaði Menningar­mála­stofnuninni að fara með málið fyrir dómstóla. Af því hefur ekki orðið enn sem komið er. Formaður safnaðar­nefndarinnar sagði í samtali við pistla­skrifara að nú hefði nefndin verið boðuð á fund í Menningar­mála­stofnuninni í september og hann vonaðist til að þar fyndist lausn sem allir gætu sætt sig við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár