Yfir 60 prósent Íslendinga treysta ekki stjórnarflokkunum til að selja bankana

61,4 pró­sent lands­manna treysta ekki Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum til að selja hluti rík­is­ins í þeim bönkum sem það á. Einungis 21,5 pró­sent treysta stjórn­ar­flokk­unum vel fyrir verk­efn­inu en 17,2 pró­sent svara hvorki né. Þetta kemur fram í könnun sem Gallup hefur gert fyrir þing­flokk Pírata og sagt er frá í Frétta­blað­inu í dag. Þar var spurt: „ „Hversu vel eða illa treystir þú núver­andi rík­is­stjórn til að sjá um sölu á hlut rík­is­ins í bönkum?“

Samkvæmt þessu treystir ein­ungis um fimmti hver Íslend­ingur flokk­unum tveimur til að selja þá eign­ar­hluti í bönkum sem ríkið heldur, eða mun halda, á. Háskóla­mennt­aðir treysta þeim minnst ásamt íbúum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og yngra fólki, í ald­urs­hópnum 25 til 34 ára.

Könnunin var fram­kvæmd af Gallup fyrir þing­flokk Pírata, dag­ana 3. til 14. des­em­ber. 1.433 voru í úrtaki Gallup, 881 svar­aði könn­un­inni eða 61,5 pró­sent.

Einkavæðing banka framundan

Rík­is­stjórnin hefur þegar gert það ljóst að til standi að selja 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum á árinu 2016. Samhliða stendur til að skrá Lands­bank­ann á markað.

Þá hefur Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lýst því yfir að það sé ekki heilla­væn­legt að ríkið eigið Íslands­banka, sem ríkið fær eign­ast að fullu eftir að stöð­ug­leika­fram­lag Glitnis verður greitt, til lengri tíma. Það má því telja nokkuð öruggt að hann verði settur í sölu­ferli í náinni fram­tíð.

Slagur er þegar haf­inn um Arion banka, þrátt fyrir að Kaupþing, eig­andi 87 pró­sent hlutar í honum, hafi þrjú ár til að selja hann. Ríkið á 13 pró­sent hlut í þeim banka.

Óljóst hver myndi selja bankana

Ekki hefur legið alveg fyrir hver myndi fara með sölu bank­anna. Í apríl var lagt fram frum­varp sem gekk út á að færa verk­efni Banka­sýslu rík­is­ins til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis. Ráðherra þess átti í kjöl­farið að setja sér­staka eig­enda­stefnu rík­is­ins sem tekur til þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem ríkið á eign­ar­hluti í, skipa þriggja manna ráð­gjafa­nefnd, án til­nefn­ingar, til að veita honum ráð­gjöf um með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og und­ir­búa sölu og sölu­með­ferð þeirra hluta. Lögin áttu, sam­kvæmt frum­varpi, að taka gildi í byrjun næsta árs.

Í fjár­laga­frum­varpi 2016 átti banka­sýslan ekki að fá krónu. Eitthvað mikið hefur hins vegar breyst í milli­tíð­inni því sam­kvæmt nýbirtum breyt­ing­ar­til­lögum við fjár­laga­frum­varp næsta árs fær hún þrefalt hærri upp­hæð en á fjár­lögum árs­ins 2015 og á að setja sig í stell­ingar til að taka á móti Íslands­banka, þegar kröfu­hafar föllnu bank­anna afhenda rík­inu hann.

Því stefnir allt í að hlutur rík­is­ins í bönk­unum verði seldur í gegnum Banka­sýslu rík­is­ins.

Sporin hræða

Nýtt einka­væð­ing­ar­ferli banka er því sann­ar­lega í bígerð. Síðast þegar ríkið réðst í slíka einka­væð­ing­ar­að­gerð, á árunum 2002 og 2003, gekk það ekki betur en svo að bank­arnir sem það seldi uxu á örfáum árum upp í að verða marg­falt stærri en þjóð­ar­fram­leiðsla Íslend­inga og hrundu svo eins og spila­borg á örfáum dögum haustið 2008 með afdrifa­miklum afleið­ingum fyrir íslenska þjóð.

Sú einka­væð­ing hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir spill­ingu, ógegn­sæi og ófag­leg­heit, enda reynsla þeirra sem fengu að kaupa bank­ana þá af fjár­mála­starf­semi lítil sem engin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár