Össur bað innflytjendur um atkvæði – notaði ráðherranetfangið

Kvenna­blaðið birtir tölvupóst sem Össur sendi innflytjanda í próf­kjörunum árið 2012 og undir­ritaði sem utan­ríkis­ráðherra Íslands. Sagður hafa beðið erlenda ríkis­borgara í erfiðri stöðu um að kjósa sig.

Össur Skarp­héðinsson nýtti sér tölvu­póstfang utan­ríkis­ráðuneytisins til smölunar í prófkjöri Samfylkingarinnar árið 2012. Kvenna­blaðið hefur birt tölvupóst sem Össur sendi einstaklingi af erlendum uppruna frá netfangi sínu úr ráðuneytinu. Þar óskar Össur eftir stuðningi mannsins í prófkjöri og undir­ritar póstinn sem utan­ríkis­ráðherra Íslands. 

Að því er fram kemur í frétt Atla Þórs Fanndals blaða­manns á vef Kvenna­blaðsins eru dæmi um fleiri sambærileg bréf, meðal annars póstur til hóps manna af afrískum uppruna sem allir voru í flókinni stöðu varðandi leyfi til búsetu og atvinnu hér á landi. 

Stundin greindi frá því í gærkvöldi að á annað hundrað innflytjenda hefði verið skráð á svokallaðan stuðnings­manna­lista Samfylkingarinnar vegna prófkjara flokksins í Reykjavík sem nú standa yfir. Þetta er um fimmtungur þeirra sem skráðir eru á lista „skráðra stuðnings­manna“ flokksins, þeirra sem ekki eru félags­menn en vilja geta kosið í próf­kjörum. Um er að ræða fjölda fólks frá Austur-Evrópu, Afríku og Miðausturlöndum, þar á meðal fólk sem kom til Íslands sem hælis­leitendur. 

Svanur Kristjánsson
Svanur Kristjánsson stjórnmála­fræðingur

Eftir að frétt Stundarinnar birtist fór af stað fjörug umræða á samfélags­miðlum. Svanur Kristjánsson stjórnmála­fræðingur sakaði Össur um að hafa smalað nýbúum og flótta­fólki á stuðnings­manna­lista Samfylkingarinnar til að fá atkvæði þeirra í prófkjöri. 

Helga Vala Helga­dóttir, lögmaður og fyrr­verandi formaður Félags Samfylkingarinnar í Reykjavík, sagði í samtali við Stundina í morgun að þegar hún kom að prófkjöri flokksins fyrir fjórum árum hafi hún orðið vitni að því þegar nokkur fjöldi erlendra borgara staðfesti við túlk að þeim hefði verið lofaður ríkis­borgara­réttur gegn því að kjósa Össur Skarp­héðinsson í prófkjöri Samfylkingarinnar. „Ég er ekki að segja að hann hafi lofað því persónu­lega, en það gerði það að minnsta kosti einhver sem vildi veg hans vel í því prófkjöri,“ segir hún. Fleiri viðmælendur staðfesta þetta í samtölum við Stundina. 

Nú hefur Kvenna­blaðið birt tölvupóst sem bendir til þess að málið sé mun alvarlegra en áður var talið. Tölvu­póstinn má sjá hér að neðan: 

Í frétt Kvenna­blaðsins segir meðal annars: 

Samfylkingin hefur um nokkurt bil lagt áherslu á að ná til innflytjenda, og fólks sem vill setjast hér að, í von um að virkja þátttöku fólks. Saga prófkjara Samfylkingarinnar vekja þó spurningar um hvort hér sé um að ræða raun­verulegan vilja til þátttöku eða misnotkun á aðstöðumun þingmanns, og árið 2012 ráðherra, og svo einstaklinga með veika félags­lega- og lagalega stöðu hér á landi.

Þá kemur eftir­farandi fram:

Samkvæmt heimildum Kvenna­blaðsins var mönnunum sem Össur sendi tölvupóst úr póstfangi ráðuneytisins gefið loforð um aðstoð vegna aðstæðna sinna. Þá sést á póstinum að Össur gefur þeim upp símann sinn og segir þeim velkomið að hringja í hann. Í bréfinu má finna farsíma Össurar ásamt farsíma Hrafns Jökuls­sonar. Þá skrifar Össur undir sem utan­ríkis­ráðherra.

Flestir voru mennirnir voru í viðkvæmri stöðu þegar samskiptin áttu sér stað og biðu úrlausna. Heimilda­maður Kvenna­blaðsins hefur staðfest að samskiptunum fylgdu vilyrði um aðstoð vegna stöðu þeirra. Óánægja kom upp meðal mannanna vegna málsins þegar aðili með tengsl inn í hópinn útskýrði fyrir mönnunum að utan­ríkis­ráðherra hefði ekki beint vald yfir því hverjir fá vernd hér á landi eða ríkis­borgararétt. Heimilda­maður Kvenna­blaðsins sem átti í samskiptum við mennina segir alveg ljóst að hér hafi aðstöðu­munur verið nýttur Össuri í hag. Kvenna­blaðið hefur undir höndum tölvupóst­samskipti við þá menn fyrir hönd Össurar.

Stundin hefur gert árangurs­lausar tilraunir til að ná tali af Össuri í dag, bæði í gsm-síma, með tölvu­pósti og á Facebook. Í frétt Vísis.is um málið kemur fram að hann vísi ásökunum Helgu Völu á bug í Facebook-skila­boðum til blaða­manns. „Að sjálfsögðu ekki. Ég hef engum manni lofað slíku, hvorki víetnömskum né öðrum, og minnist þess ekki að hafa talað við mann af víetnömskum uppruna frá því 10 flótta­menn bjuggu á hæðinni fyrir neðan mig á Holts­götunni,“ er haft eftir Össuri sem bendir á að sömu ásakanir hafi komið upp fyrir fjórum árum. „Af hverju ætti að þurfa stjórn­málamann til að gera víetnama að ríkis­borgara? Hafi þeir dvalar­leyfi hér á landi njóta þeir allra réttinda, og geta orðið ríkis­borgarar einsog aðrir eftur tiltekna dvöl sk. einföldum reglum.“

Ekki náðist í Oddnýju G. Harðar­dóttur, formann Samfylkingarinnar, við vinnslu fréttarinnar. 

Óskar Steinn Jónínu- og Ómarsson, ritari Samfylkingarinnar, birti hins vegar Facebook-færslu skömmu áður en Kvenna­blaðið og Stundin fjölluðu um málið. Þar skrifar hann:

„Í dag hafa komið fram ásakanir um að innflytjendum hafi verið lofað ríkis­borgara­rétti gegn því að kjósa tiltekinn fram­bjóðanda í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir Alþingis­kosningarnar 2013. Eins og flestum öðrum er mér verulega brugðið vegna þessara ásakana. Að misnota fólk í viðkvæmri stöðu með þessum hætti er fullkomlega siðlaust og það eru vinnu­brögð sem eiga ekki að líðast í neinum stjórn­málaflokki. Því mun ég fara fram á það í stjórn Samfylkingarinnar að þetta mál verði rannsakað ofan í kjölinn og sann­leikurinn í málinu dreginn upp á yfir­borðið. Séu ásakanirnar á rökum reistar verður að grípa til aðgerða til að svona lagað komi ekki fyrir aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár