Frostið flækist fyrir úkraínskum herdrónum

Drónar, sem hafa reynst bæði Úkraínu­mönnum og Rússum mikil­vægir, þola illa það mikla frost sem nú er í Úkraínu. Í frostinu verða sár líka fljótt banvæn en ofkæling og kal á útlimum eru algeng.

Kuldi
Kuldi Snævi þaktir lampar við bráða­birgða­minn­ing­ar­reit um fallna úkra­ínska og erlenda her­menn á Sjálf­stæð­is­torg­inu í Kænu­garði. Það hefur ekki verið jafn kalt á víg­línu stríðs­ins frá því að það braust út með inn­rás rúss­neska hers­ins, fyrir fjórum árum. Mynd: Sergei SUPINSKY / AFP

Fyrr í vetur var sveit Alis að setja á loft dróna á víglínunni í Úkraínu í miklu frosti, þegar mynda­vélin fraus skyndi­lega. Það kom í veg fyrir að þeir gætu greint stöðuna og brugðist við yfir­vofandi árás Rússa.

Hita­stigið á um 1.200 kílómetra langri víglínunni hefur aldrei farið jafn lágt, frá því stríð Rússlands og Úkraínu hófst fyrir fjórum árum. Kuldanum fylgja aukin vandkvæði við notkun rafhlöðu­knúinna dróna, sem gegna lykil­hlutverki í hernaðar­aðgerðum beggja fylkinga.

„Áhrifin á drónana okkar eru mjög neikvæð,“ sagði Ali, sem bað AFP um að nota kallmerki sitt, í samræmi við reglur hersins. „Rafhlöður tæmast hraðar, mynda­vélarnar og vírarnir frjósa, þeir ísa bara.“

Bæði rússneski og úkraínski herinn eru farnir að nota einfalda dróna í gríð og erg. Litlir könnunar­drónar kanna stöðu óvinarins og geta varpað hand­sprengjum á skotmörk og hermenn, og greina jafnvel minnstu hreyfingu á jörðu niðri, á meðan aðrir eru …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár