Mesta poppstjarna Evrópu

Eftir að hafa verið í Frakk­landi í smá tíma er óhjákvæmilegt að heyra minnst á Stromae. „Hvernig finnst þér Stromae? Eruð þið búin að heyra nýja plötuna? Sáuð þið hann í sjón­varpinu í gær. Er Stromae hommi? Er hann ekki frábær?“

Stromae er stöðugt fyrir augum manns - í eyrunum, alls staðar. Enginn prýðir forsíður blaðanna oftar en hann. Alltaf í útvarpinu, sjón­varpinu; tónlistin heyrist um allt: á kaffi­húsum, á börum, í búðum, í partýum; ungir sem aldnir, konur, karlar og börn falla fyrir Stromae. Ég veit ekki hversu oft ég hef verið spurður út í þennan mann, sem virðist vera alls staðar yfir og allt um kring.

Hver er þessi Stromae?


Stromae, öðru nafni Paul Van Haver, er fæddur 12. mars 1985 í Brussel. Belgískur rapp­ari, söngv­ari og laga­höf­undur. Faðir hans er frá Rúanda, arki­tekt sem var myrtur í þjóð­ar­morð­unum í Rúanda 1994. Hann var fjar­ver­andi mest alla barn­æsku Stromae sem er því að mestu upp­alin hjá flæmskri, fátækri og ein­stæðri móður, ásamt fjórum öðrum syst­kynum í fátæku úthverfi í Brussel. Móðir hans hvatti hann óspart áfram til þess að stunda íþróttir og læra tón­list. Hann lagði stund á slag­verk og trommur og stofn­aði sína eigin rapp­hljóm­sveit sem ung­lingur.

Vegna uppruna síns segist hann aldrei hafa upplifað sig sem raun­verulegan Belga, þótt hann sé þar fæddur og uppalinn. Í laginu Bâtard eða „Bast­arðurinn“ segir hann:

„Ég er hvorugt þessi eða hinn,
heill eða hálfur;
ég er aðeins ég sjálfur.“

Honum gekk aldrei vel í skóla, féll í gaggó, fann sig hvergi nema í tónlist, en fékk þó tækifæri til þess að stunda listnám og þar fann hann loks sinn stað í lífinu. Gerði þar sína fyrstu smáskífu: Juste Un Cerveau, Un Flow, Un Fond et Un Mic.

Steimarinn


Stromae er stafa­brengl á orð­inu Maestro (meist­ar­inn/steimar­inn) sem er auð­vitað mjög hiphoppísk nafn­gift enda liggja ræt­urnar þar, þótt áhrifin séu marg­vís­leg. Tón­listin hans er undir ýmsum áhrifum, elektrónísk hip hop tón­list, bragð­bætt með afrískri þjóð­lagatón­list og franskri kab­ar­ett­stemn­ingu. Hann seg­ist sækja áhrifin víða; banda­rísk hip hop tón­list sé þar afar mik­il­væg, sömu­leiðis Jacque Brel, dans­tón­list frá Kúbu og rúmbu­slag­arar frá Kongó séu í miklu eft­ir­læti, en auk þess evr­ópsk dans­tón­list frá tíunda ára­tugnum, Eurodance eða Eurotrash, eins og sumir kalla hana, sem sjaldan hefur verið í hávegum höfð hjá tón­list­ar­spek­úlöntum - en Stromae engu að síður dýrkar:

„Þó eurodance-tónlist tíunda áratugarins sé jafnan fyrirlitin er þar margt sniðugt að finna: house, salsa og ýmislegt fleira. Svo er hún bara svo fyndin og skemmtileg - tilgerðar­laus“

Árið 2009 vann hann sem starfs­nemi á útvarps­stöðinni NRJ í Brussel. Sú stöð tók hann upp á sína arma og setti í spilun hans fyrsta lag sem sló í gegn, Alors on danse, sem flaug upp alla vinsældar­lista í Evrópu 2009. Lagið fór á toppinn í Belgíu, Frakk­landi, Svíþjóð, Grikk­landi, Þýsklalandi, Austur­ríki, Tyrklandi, Sviss, Ítalíu, Danmörku, Rúmeníu og Tékklandi. Allir fóru að tala um Stromae, meira að segja Frakk­lands­forseti, Nicolas Sarkozy, sem lofaði lagið og tónlistar­manninn. Sjálfur Kanye West liðsinnti honum í sérstakri hljóð­blöndun á laginu og sagðist fíla Stromae. Í hip hop-heiminum er það auðvitað eins og að fá blessun frá sjálfum páfanum. Í kjölfarið var gerður stór útgáfu­samningur við Vertigo Records.

2013 kom út breið­skífan Racine Carrée sem vakti mikla athygli; almenningur jafnt sem gagn­rýnendur lofuðu hana óspart; marg­verðlaunuð og víða valin plata ársins.

Tónlistar­maðurinn Stromae á tónleikum. Mynd: EPA

Mín káta angist


Þótt tón­list Stromae sé dansvæn og dill­andi eru text­arnir oftar en ekki grafal­var­legir. Hann seg­ist hafa mjög ákveðna hug­mynd um texta­smíð; text­arnir eiga að fjalla um eitt­hvað raun­veru­legt; hið sorg­lega en líka hið gleði­lega; um lífið sjálft. Hann sker sig því frá mörgum öðrum röpp­urum sem vilja helst ekki kveða um neitt annað en kyn­líf og pen­inga. Stromae hefur til að mynda raulað um föð­ur­missi og það að alast upp án föð­urs. „Þunga­miðjan í text­unum mínum er tregi; hin káta ang­ist,“ segir Stromae. Hann flaggar oft afrískum upp­runa sínum, bæði í tón­list­inni og líka í fata­stíl sem er afar lit­ríkur.

Tónlistarmaðurinn Stromae á tónleikum. Mynd: EPA
Tón­list­ar­mað­ur­inn Stromae á tón­leikum. Mynd: EPA

„Ég kem nefnilega frá tveimur heimum og þess vegna er gott að vera í Belgíu sem er klofið land; tveir heimar. Það er land mála­miðlana. Engin krafa um eins­leitni.“

Mynd­böndin hans, sem hann á stóran þátt í að skapa, eru einföld, litrík og sniðug. Við lagið Formidable kom hann sér fyrir dauða­drukkinn úti á götuhorni með falda myndavél og fór að betla peninga og rétta fram hjálpar­hönd. Mikil umræða skapaðist um þetta myndband – sér í lagi um lögregluna í Brussel sem stóð bara álengdar og gerði ekki neitt, á meðan hann datt stöðugt í götuna. Stromae tók þó seinna upp hanskann fyrir lögregluna og sagði að hún hefði brugðist rétt við, þó hún hefði kannski ekki alveg strax áttað sig á þessum gjörningi - að sjá blindfulla, heims­fræga popp­stjörnu ráfandi um fyrir utan lestastöð, eldsnemma um morgun.

Prinsinn af Belgíu


Belgar dýrka Stromae – og hann gæti hæg­lega tekið við kon­ungs­tign í land­inu. Hann samdi og söng hvatn­ing­ar­söng belgíska land­liðs­ins í knatt­spyrnu á HM síð­asta sumar. Stromae er sömu­leiðis far­inn að hasla sér völl í Banda­ríkj­unum og fór í stóra tón­leika­ferð um landið á þessu ári, sem vakti mikla athygli. Treður upp í Madison Square Garden í New York og öðrum risa­leik­vöngum á næst­unni. Hann tók þátt í að gera tón­list í síð­ustu Hung­ur­leika-mynd, ásamt Kanye West, Grace Jones, Chemical Brothers og fleirum.

Stíll og framkoma hans þykir snjöll og seiðandi. Hann höfðar sterkt bæði til karla og kvenna; þykir ögn kvenlegur, hefur leikið sér kynímynd og ruglað fólk í ríminu með sitt kynlega atgervi. Nú hefur þessi mesta tísku­fyrirmynd og poppstjarna Evrópu búið til sitt eigið fata­fyrirtæki, Mosaert (enn og aftur stafa­brengl á maestro eða meistarinn) og fram­leiðir föt með miklum ágætum. Allt selst upp. Því allir vilja vera eins og Stromae.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár