„Verulega óheppilegt og óæskilegt“ að styrkir til lögreglumanna hafi endað í einkafyrirtæki

Í yfir­lýsingu frá Íslenska lögreglu­forlaginu biðst fyrir­tækið afsökunar á því að nokkur fyrirtæki, sveitar­félög og samtök hafi verið skráð í auglýsingu á vegum FÍFL. Lögreglu­stjóri sem styrkt hefur fjár­söfnun í gegnum forlagið gagnrýnir að stærstur hluti styrksins hafi endað í rekstri fyrir­tækisins.

Rúmar 4 milljónir í styrki frá hinu opinbera
Rúmar 4 millj­ónir í styrki frá hinu opin­bera Frá árinu 2017 hefur Íslenska lög­reglu­for­lagið fengið rúm­lega fjórar millj­ónir í styrki frá hinu opin­bera. Þar á meðal er tæp­lega 800 þús­und króna styrkur frá Inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Mynd: Samsett / Stundin

Íslenska lögreglu­forlagið harmar að fyrirtæki, sveitar­félög og samtök hafi verið skráð stuðnings­aðilar auglýsingar Félags íslenskra fíkniefna­lögreglu­manna að þeim forspurðum. Þetta kemur fram í yfir­lýsingu sem fyrir­tækið, sem hafði milli­göngu um að afla styrkja og stuðnings við auglýsinguna, sendi frá sér í morgun. 

Lögreglu­stjóri sem styrkt hefur fjár­söfnun í gegnum forlagið gagnrýnir að stærstur hluti styrksins hafi endað í rekstri fyrir­tækisins. 

Óánægð með tóninn

Eitt félaganna sem sett var á lista hinna stuðnings­ríku var Rauði krossinn. Talsmaður hans sagði samtökin ekki einu sinni styðja skila­boðin sem birtust í auglýsingunni, hvað þá að samþykkt hafi verið að taka þátt í auglýsingunni. „Okkur finnst vera þarna þessi hræðslu­áróðurs­tónn sem við styðjum ekki,“ sagði Gunnlaugur Bragi Björnsson, upplýsinga­fulltrúi Rauða Krossins, í samtali við Vísi. 

Í yfir­lýsingu lögreglu­forlagsins segir líka að forlaginu hafi borist athuga­semdir frá aðilum sem styrktu auglýsinguna um að þeim hafi ekki verið gert ljóst hvaða texti yrði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár