Sæstrengur frá Noregi til Bretlands - lengsti strengur í heimi

Sæstrengur verður lagður frá Kvilldal í Noregi, sem er í Rogalandi, og til Blyth í Bretlandi. National Grid í Bretlandi, sem er opinbert fyrirtæki um orku­mannvirki, og Statnett í Noregi, sambærilegt fyrirtæki þar í landi, hafa samið um sæstrenginn sem verður 730 kílómetra langur. Samningarnir voru undir­ritaðir í breska sendi­ráðinu í Osló í gær.

Fyrir­tækin tvö hafa svipað verkefni og Landsnet hefur hér á landi.

Sæstrengurinn mun geta afkastað 1.400 megavött af rafmagni og er stefnt að því að hann muni útvega 750 þúsund heimilum í Bretlandi vistvæna orku þegar hann er tilbúinn. Heildar­kostnaður er um tveir milljarðar evra, eða um 300 milljarðar króna, að því er fram kemur í The Guardian. Til saman­burðar þá er Kára­hnjúka­virkjun 690 megavött.

Strengurinn verður lengsti neðan­sjávar­sæstrengur í heiminum, sem flytja mun raforku, og er ætlað að vinna að vistvænu orkukerfi fyrir Bretland til framtíðar litið.

Norðmenn hafa þegar hrint í framkvæmd metnaðar­fullum áformum um lagningu sæstrengja til Evrópu, ekki síst vegna góðrar reynslu af strengnum sem lagður var milli Noregs og Hollands.

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins (ESB) hefur sett fram tilmæli til aðildar­ríkja sambandsins þess efnis að þau efli samtenginar flutnings­kerfa raforku, m.a. með aukinni uppbyggingu sæstrengja. Árið 2020 er hverju aðildar­ríki ætlað að búa að flutnings­getu til annarra ríkja á sem svarar a.m.k. tíu prósent allrar raforku sem framleidd er í landinu. Þessari stefnu er m.a. ætlað að efla orku­öryggi og bæta nýtingu raforku­kerfa, og minnka þar með þörfina á að auka vinnslu­getu raforku með virkjunum eða öðrum raforku­verum.

Hér má sjá hvernig strengurinn mun liggja milli Noregs og Bretlands. Mynd: Guardian.

Hér má sjá hvernig strengurinn mun liggja milli Noregs og Bretlands. Mynd: Guardian.
Hér má sjá hvernig streng­ur­inn mun liggja milli Noregs og Bret­lands. Mynd: Guardian.

Tólf núverandi aðildar­ríkja ESB uppfylla ekki þessar kröfur í dag, m.a. Bretland og Írland. Ætla má að þessar kröfur, auk kröfunnar um aukinn hlut endurnýjanlegra orkugjafa og aukið orku­öryggi, skýri þann áhuga sem bresk stjórn­völd hafa sýnt á tengingu um sæstreng við önnur ríki, þar á meðal Noreg og Ísland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár