Hagnaður Barclays dregst saman en bónusarnir aukast

Stjórn Barclays bankans í Bretlandi hefur ákveðið að auka fjár­munina sem eru til skiptanna í bónus­greiðslur um 22 prósent, og nemur upphæðin sem starfs­menn geta fengið í bónus­greiðslur, ef markmið nást, nú 1,86 milljörðum punda, eða sem nemur 372 milljörðum króna.

Hagnaður bankans á síðasta ári lækkaði um 21 prósent milli ára, samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC, og var 2,26 milljarðar punda, eða sem nemur 440 milljörðum króna. Bankinn, sem staðinn hefur verið að fordæma­lausri markaðs­misnotkun á gjaldeyris­markaði, hefur nú hækkað varasjóð til að mæta frekari sektum vegna markaðs­misnotkunar um 750 milljónir punda. Sjóðurinn nemur nú 1,25 milljörðum punda, eða sem nemur um 250 milljörðum króna. Dómsmála­ráðuneyti Banda­ríkjanna telur bankann hafa brotið lög, og er talið að það muni krefja bankann um háar sektar­greiðslur vegna þessa.

Forstjóri bankans, Antony Jenkins, fékk 1,1 milljónir punda í bónus­greiðslu vegna hagnaðar bankans í fyrra, eða sem nemur 220 milljónum króna. Heildar­laun hans á árinu 2014 námu 5,5 milljónum punda eða sem nemur 1,2 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár