Trúfélagið Zuism lofar endurgreiðslu ríkisstyrkja

„Höfuð­markmið Zúista er að hið opinbera felli úr gildi öll lög sem veita trú- og lífs­skoðunar­félögum forréttindi eða fjár­styrki,“ segir í yfir­lýsingu nýrrar stjórnar Zuisma. Stundin fjallaði fyrr á þessu ári um trúfélagið í tengslum við að fyrrum forstöðu­maður Ólafur Helgi Þorgrímsson hefur verið til rann­sóknar hjá sérstökum saksóknara.

Guðir súmera
Guðir súm­era Hér má sjá minjar frá Súmer sem sýna guði sið­menn­ing­unnar.

Ný stjórn hefur tekið við hjá trúfélaginu Zuism á Íslandi sem Stundin hefur áður fjallað um. Í yfir­lýsingu sem stjórnin sendi frá sér í dag kemur fram að félagið muni endur­greiða alla ríkis­styrki til félags­manna. Ísak Andri Ólafsson er forstöðu­maður nýrrar stjórnar. Söfnuðurinn fékk formlega skráningu árið 2013 eftir að honum hafði verið hafnað árið áður. Skráðir meðlimir voru þrír fyrr á þessu ár og stóð til að það yrði brotfellt.

​„Trúfélagið Zuism er vettvangur fyrir fólk til að iðka trú sem byggir á trúar­brögðum hinnar fornu þjóðar Súmera.

Zúistar styðja fullt og óskorað frelsi til trúar­iðkunar og trúleysis. Höfuð­markmið Zúista er að hið opinbera felli úr gildi öll lög sem veita trú- og lífs­skoðunar­félögum forréttindi eða fjár­styrki umfram önnur félög og að núverandi gagna­grunnur yfir trúfélaga­aðild lands­manna verði lagður af.

Trúfélagið Zuism er ólíkt öðrum trúfélögum að því leyti að það endur­greiðir meðlimum sínum árlegan styrk, sem það fær frá ríkinu í nafni félaga sinna, að frádregnum umsýslu­kostnaði. Lögmaður og endur­skoðandi trúfélagsins munu einir sjá um fjármál félagsins. Stjórn þess og aðrir félagar munu aldrei hafa aðgang að fjármunum Zúista.​

Félagið verður lagt niður um leið og markmiðum þess hefur verið náð,“ segir í yfir­lýsingunni.

Samkvæmt vefsíðu trúfélagsins munu félags­menn fá ríkis­styrkinn, um 10 þúsund krónur á ári, endur­greiddan.

Fyrrum forstöðumaður í rannsókn

Stundin fjallaði fyrr á þessu ári um trúfélagið í tengslum við að fyrrum forstöðu­maður Ólafur Helgi Þorgrímsson hefur verið til rann­sóknar hjá sérstökum saksóknara. Ólafur er framkvæmda­stjóri Luxury Adventures og var skráður forstöðu­maður trúfélagsins Zuism.  

Samkvæmt heimildum Stundarinnar snýst málið um peninga­þvott í gegnum félagið Luxury Adventures.

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, stað­festir að rannsókn á Ólafi Helga hafi staðið um nokkurt skeið. Sérstakur saksóknari segist annars lítið geta sagt um málið meðan það er enn í rannsókn. Hann segir þó að rann­sóknin sé mjög langt komin, raunar nærri lokið. Ólafur Þór segir að málið hafi komið upp árið 2013. Vænta má þess að málið fari í ákæru­meðferð á næstu vikum.

Verur með yfirnáttúrulega krafta

Nálgast má kenni­setningar Zuism hér. Samkvæmt þeim eru reglulegar samkomur þar sem sungnir eru sálmar frá forn-súmeríu til heiðurs guða. „Farið er með bænir til sköpunar­guðanna og einnig fer hver með bænir til sinna persónu­legu undir-guða,“ segir í kenni­setningar­kafla trúfélagsins.

Zúistar trúa samkvæmt sama kafla á lifandi verur með yfir­náttúrulega krafta: „Við trúum að alheiminum sé stjórnað af hópi lifandi vera, sem hafa mannlega mynd en eru ódauðlegar og búa þær yfir yfir­náttúru­legum kröftum. Þessar verur eru ósýnilegar augum manna og leiðbeina og stjórna alheiminum í samræmi við vel lagðar áætlanir og lögmál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár