ISIS hóta stofnanda Twitter og starfsfólki fyrirtækisins lífláti

Jack Dorsey, stofnanda Twitter, og starfs­mönnum fyrir­tækisins hefur verið hótað lífláti vegna þeirrar afstöðu þess að loka samfélags­miðla­aðgöngum sem tengjast samtökunum Íslamska ríkið (ISIS). Hótunin var sett fram á sunnudag á vefsíðunni Pastebin. Í henni eru allir jíhad­istar heims hvattir til að sameinast í baráttu gegn Twitter.

Samkvæmt frétt BuzzFeed um málið þá hafa stuðnings­menn ISIS verið duglegir að deila hótuninni en ekki er enn búið að komast að því hver það var sem setti hana inn á síðuna.

Með hótuninni, sem er skrifuð á arabísku, er mynd af Dorsey þar sem með skotmarks­skífu yfir andliti hans. Twitter-vöru­merkið er einnig sýnilegt á myndinni.

dorsey
dorsey

Business Insider reyndi að þýða hótunina og segir að þar standi meðal annars að „Jack verði hjálpar­laus þegar háls hans verður opinber­lega orðin skotmark fyrir hermenn Caliphate og stuðnings­menn sem dreifðir eru á meðal ykkar“. Caliphate vísar til íslamsks stjórn­valds sem stýrt er af Caliph, nokkurs konar eftir­manns Múhameðs spámanns.

Síðar í yfir­lýsingunni skrifar höfundur hótunarinnar um „fjölmiðla­stríð“ (e. media war) og segir að með því að stöðva ISIS frá því að tvíta skila­boðum sínum sé Twitter að standa í vegi fyrir miðlun hinnar heilögu baráttu samtak­anna til umheimsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár