Enn eitt dauðsfallið í Silfru og svæðinu lokað

Tvö banaslys hafa orðið í Silfru á innan við tveimur mánuðum.

Köfun í Silfru á Þingvöllum hefur verið vinsæl afþreyging fyrir ferðamenn.
Köfun í Silfru á Þing­völlum hefur verið vin­sæl afþreyg­ing fyrir ferða­menn.

„Fréttir af enn einu andlátinu við Silfru er þyngri en tárum tekur. Ég, ásamt þjóðgarðs­verði og öðrum stofnunum, hef ákveðið að loka svæðinu og láta gera úttekt og áætlun um öryggi þeirra ferða­manna sem hana sækja.“

Þetta segir Björt Ólafs­dóttir, umhverfis­ráðherra, á Facebook síðu sinni.

Eins og greint var frá í dag, þá lést maður eftir að honum hafði verið bjargað meðvitundar­lausum úr Silfru á Þing­völlum í dag. Lögreglan á Suður­landi tilkynnti þetta á Fésbókar­síðu í gærkvöldi. Þar kemur fram að hann hafi verið úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna á sjúkrahús í Reykjavík, en hann var fluttur þangað með þyrlu um fimm leytið í dag.

Maðurinn var bandarískur ferða­maður á sjötugsaldri, sem var að snorkla í Silfru ásamt fleirum úr fjöl­skyldu sinni í skipulagðri ferð. Tæpur mánuður er liðinn frá því að bandarískur ferða­maður lést í Silfru.

Að minnsta kosti tíu slys hafa orðið í Silfru á síðustu átta árum, samkvæmt umfjöllun Morgun­blaðsins. Þar af hafa þrír látist við köfun, en í síðustu tveimur tilvikum voru ferða­mennirnir að snorkla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár