14 skotnir til bana og 14 særðir í San Bernardino í Kaliforníu

Í það minnsta 14 eru látnir. Lögreglan er enn að leita byssu­manna, og með mikinn viðbúnað á vettvangi.

Í það minnsta 14 eru sagðir látnir og 14 til viðbótar særðir eftir skotárás í San Bernardino í Kaliforníu, tæplega 100 kílómetra fyrir utan Los Angeles. Um 200 þúsund manns búa í San Bernardino. Lögreglan er með mikinn viðbúnað á vettvangi, og vinnur nú að því tryggja öryggi á vettvangi.

Samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC varð árás­in fram­in í hús­næði In­land Reg­i­onal Center, sem er þjón­ustumiðstöð fyr­ir fólk með þroska­skerðingu.

CNN hefur greint frá því að byssumenn gangi lausir, og hafi komist undan keyrandi, en upplýsingar um atburða­rásina eru enn að berast.

Fréttin hefur verið uppfærð. Upphaf­lega var sagt að 20 manns hefðu verið skotnir til bana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár