„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“

Nútíminn birti yfir­lýsingu frá nafn­lausum einstaklingi sem segist bera ábyrgð á því að hafa málað yfir hinsegin fánann á kirkju­tröppum Grafa­vogskirkju. Þar segist hann hafa viljað sjá viðbrögðin við því sem hann kallar „myndlistar­gjörning“. Ráðherra gefur lítið fyrir þessi skrif og segir rasista vilja endur­skilgreina íslenska fánann. Hún hvetur fólk til að standa gegn sundrungu.

Sá sem málaði yfir hinsegin fánann á tröppum Grafar­vogskirkju hefur sent frá sér yfir­lýsingu sem birt var á Nútímanum. Þar talar hann um skemmdar­verkið sem „myndlistar­gjörning“ sem hann hafi litið á sem „prófstein til þess að mæla hvar samfélagið væri statt“. 

Í samtali við RÚV sagði séra Arna Ýrr Sigurðar­dóttir að um skemmdar­verk væri að ræða, þar sem einhver hafi tekið sig til að næturlagi og málað íslenska fánann yfir hinsegin fánann. Málið er rannsakað sem haturs­glæpur: „Þetta er ákveðin tegund af skemmdar­verki. Það er verið að gera þetta á eign kirkjunnar sem við höfum yfirráð yfir. Það er ekki leyfilegt að hver sem er geti komið og gert hvað sem er þar,“ sagði séra Arna Ýrr.  

Hafði hugsað lengi þetta 

Hinsegin fáninn hefur verið á kirkju­tröppunum í fimm ár og verður áfram. Eins og fram kom í viðtali við Örnu Ýrr á Vísi hafa áður verið …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár