Ef spilling minnkar um tíu prósent skilar það heiminum 51 þúsund milljörðum króna á ári

David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, segir að ef tækist að draga úr spillingu um tíu prósent myndi það skapa ávinning fyrir efnahags­kerfi heimsins upp á 380 milljarða dali, um 51 þúsund milljarða íslenskra króna, á hverju ári. Þetta kom fram í ræðu sem hann flutti í Singapore í dag þar sem Cameron er í opinberri heimsókn.

Í ræðunni fjallaði Cameron um Lee Kuan Yew, sem var forsætis­ráðherra Singapore frá 1959 til 1990 og lést fyrr á þessu ári. Undir stjórn hans stökk­breyttist samfélagið í Singapore og landið varð ein af helstu miðstöðvum viðskipta í heiminum. Cameron sagði að ein vanmetnustu hráefnin í nútíma­samfélagi væri gagnsæi og barátta gegn spillingu. "Engin skildi það betur en Lee Kuan Yew. Það var staðfesta hans í barátt­unni gegn spillingu sem hjálpaði fólki að öðlast trú til að fjárfesta í þessu ótrúlega landi. Það er engin tilviljun að klifur Singapore á topp alþjóðlegra vísitalna um þau lönd sem glíma við minnsta spillingu og þar sem er auðveldast að eiga viðskipti hafa haldist í hendur við þann mikla alþjóð­lega efnahags­árangur sem landið hefur náð."

Cameron sagði siðan að hann teldi að leið­togar heims­ins þyrftu að sýna sömu leið­tog­ar­hæfi­leika í að berj­ast gegn spill­ingu og Lee Kuan Yew gerði í Singa­pore með góðum árangri. "Hugsið um þau átök sem við ráðumst í til að auka hag­vöxt í heim­inum. Hugsið síðan um þá stað­reynd að spill­ing bætir tíu pró­sentum við kostað vegna við­skipta og með því að draga úr spill­ingu um tíu pró­sent gæti ávinn­ing­ur­inn fyrir efna­hags­kerfi heims­ins orðið 380 millj­arðar dala á hverju ári.[...]Spilling er ein helsti óvinur fram­fara á okkar timum," sagði breski for­sæt­is­ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár