Fimm mikilvægir hlutir sem eru að gerast í heiminum í dag

Óveðrið á Íslandi er ekki það eina sem er að gerast í heiminum í dag. Kjarninn hefur tekið saman nokkra mikilvæga hluti sem eiga sér stað annars staðar í heiminum.


  1. Þrjár breskar stúlkur sem fóru frá Bretlandi til Tyrklands til að ganga til liðs við Íslamska ríkið eru taldar vera komnar til Sýrlands.

  2. Stjórn­endur HSBC bankans þurfa að koma fyrir þingnefnd í Bretlandi í dag til að svara fyrir gögn sem sýna að bankinn hafi aðstoðað viðskipta­vini sína við að svíkja undan skatti.

  3. Ný rannsókn á lyfi, sem heitir Truvada og á að koma í veg fyrir HIV-smit, sýndi fram á að líkur á smiti geti minnkað um 86 prósent ef hún er tekin áður og eftir að kynlíf er stundað.

  4. Drónar sáust fljúga yfir kenni­leitum í París í nótt, aðra nóttina í röð. Það er bannað að fljúga yfir borgina að nóttu til og lágflug almennt krefst leyfis. Verið er að rannsaka málið.

  5. Barack Obama beitti neitunar­valdi sínu í þriðja sinn til að koma í veg fyrir frumvarp sem átti að leyfa byggingu á risa­vaxinni olíu­leiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár