Bannað að henda mat í Frakklandi

Samkvæmt nýjum frönskum lögum mega matvöru­verslanir ekki lengur henda mat. Matvörur, sem komnar eru fram yfir síðasta söludag, verða annað hvort gefnar til góðgerðar- og hjálpar­samtaka eða þá notaðar í dýrafóður eða sem jarðvegs­bætir. Þessi laga­breyting er algjör­lega einum manni að þakka sem fór í stríð gegn stór­mörkuðunum og hafði betur. Hann lætur ekki staðar numið og ætlar sér stóra hluti um allan heim.

Sóun á matvælum


Arash Derambarsh situr í borg­ar­ráði Parísar. Fyrir nokkru setti hann af stað átak gegn sóun á mat­vælum. Honum blöskr­aði hversu miklum mat stór­mark­að­irnir hentu á sama tíma og margir borg­ar­búar liðu skort og áttu hrein­lega ekki fyrir mat. Tæplega 70% af öllu fersku káli hefur verið hent, 40% af öllum eplum fóru vana­lega í tunn­una, varla helm­ingur af öllu brauð­meti var keypt – afgangnum hent á haug­ana.

Þetta er raun­veruleikinn í flestum stór­mörkuðum hins vestræna heims. Nýtingin er skelfileg. Reyndar er ekki bara við stjórn­endur fyrir­tækjanna að sakast. Venju­legir neytendur er sennilega verstir - um helmingur vöru­körfunnar endar vanalega í ruslinu. Hver Frakki er talinn henda um 20-30 kíló af ætilegum mati árlega. Verðmætin í þessum mat, sem hent er í ruslið, eru metin í hundruðum milljarða.

Í byrjun átaksins fór hinn 35 ára gamli Derambarsh um og ræddi við kaupmenn í nágrenni sínu; samdi við þá um að gefa heimilis­lausum, einstæðum mæðrum, fátækum börnum, atvinnu­lausum og elli­lífeyrisþegum mat sem kominn var fram yfir síðasta söludag – fremur en að henda honum. Á hverjum degi kom hann vanalega um 100 manns til hjálpar. Ýmsir stór­markaðir brugðust hins vegar illa við þessu framtaki hans og neituðu að gefa mat.

Hann gafst þó ekki upp; skrifaði greinar, ræddi við fólk og fjölmiðla, safnaði 200.000 undir­skriftum þar sem stjórn­völd voru hvött til þess að setja ný lög og banna hreinlega þessa sóun. Hann afhenti franska þinginu áskorun sem brást fljótt við og nú hafa ný lög tekið gildi sem knýja stór­markaði til þess að gefa mat í stað þess að henda honum. Matvörur sem ekki er hægt að selja lengur eru afhentar góðgerðar­samtökum sem dreifa þeim síðan til nauð­staddra og fátækra. Þeir sem henda mat eiga von á viðurlögum og sektum. Von stjórn­valda með nýju lögunum er að minnka þessa sóun um helming.

Átak sem breytt gæti heiminum


Arash Derambarsh er hvergi nærri hættur þrátt fyrir þennan mik­il­væga áfanga. Sams­konar bar­átta hefur raunar verið í gangi um allan heim, m.a. á Íslandi þar sem ýmsir skólar og sam­tök hafa hvatt fólk og fyr­ir­tæki til þess að henda ekki mat.

Arash segir það hneyksli að fólk skuli henda mat á meðan fátækt og heimilis­laust fólk svelti. Hann er ánægður með viðbrögð franska þingsins og vill að önnur lönd Evrópu fylgi í kjölfarið. Jafnvel heimurinn allur. Hann segir matar­pólitík vera mikil­vægasta verkefni samtímans:

„Matur er undir­staða lífsins; grundvallar­þáttur tilveru okkar. Matur skiptir öllu máli. Ég hef verið gagn­rýndur fyrir að vera einfaldur hugsjóna­maður. En ég fór í stjórnmál til þess að gera gagn og reyna að hjálpa fólki. Kannski er það hallærislegt að vilja hjálpa öðrum, en svona er ég gerður. Ég hef sjálfur verið fátækur og svangur.“

Hann bendir t.d. á að flestir námsmenn þurfi að lifa spart. Þeir borði að jafnaði aðeins eina máltíð á dag og þá vanalega ódýrt fæði eins og pasta eða kartöflur. Nám sér kröfuhörð og mikil vinna, sem krefst mikillar orku og það sé aukið álag að þurfa stöðugt að þurfa örvænta um mat. Af hverju ekki að gefa þessum mikilvæga hópi fram­tíðarinnar mat – fremur en að henda honum?

Derambarsh horfir nú á heiminn allann og vinnur m.a. með ONE samtökunum, sem berjast gegn sóun á matvælum. Eitt af aldar­markmiðum Sameinuðu þjóðanna er að binda enda á fátækt í heiminum; fátækt og hungurs­neyð er stærsta vandamál mannkyns og stöðugt umræðu­efni á alþjóð­legum ráðstefnum.

„En lausnin er svo einföld og blasir við: Hættum að henda mat!“

Segir Derambarsh og bendir á að ríflega sjö milljónum tonna af mat sé hent árlega í Frakk­landi. 67% af því séu neytendur sjálfir, 15% veitinga­staðir og 11% matvöru­verslanir. Í Evrópu er árlega hent 89 milljónum tonna og 1,3 milljörðum tonna af mat er hent í heiminum öllum.

Alls ekki ónýtur matur


Þótt matur sé kom­inn fram yfir síð­asta sölu­dag er hann síður en svo ónýtur eða hættu­legur. Nær­ing­ar­fræð­ingar hafa ítrekað það. Fremstu mat­reiðslu­meist­arar Frakk­lands hafa stutt átakið og eldað dýr­indis mál­tíðir úr mat­vörum sem stór­mark­að­irnir hafa sett í ruslið. Sjón­varps- og útvarps­þættir, blaða­greinar og vef­síður hafa verið und­ir­lagðar átak­inu um að henda ekki mat. Margir hag­fræð­ingar hafa bent á með tölum og rökum að betri nýt­ing á mat­vælum sé ekki bara mörgum fjöl­skyldum og ein­stak­lingum í hag - heldur líka afar brýnt fyrir allt þjóð­ar­búið.

Margir hafa brugðist við nýju lögunum; þróuð hafa verið ýmiskonar snjall­síma-forrit sem gera fólki kleyft að finna fersk matvæli sem á að fara henda. Nokkrir veitinga­staðir auglýsa sig nú sem „hendum engu -nýtum allt“ - sem er í takt við þessa nýju bylgju.

Mikil­vægast er samt að almenningur læri að nýta betur matinn sinn sem það kaupir dýrum dómi – til þess að auðga líf sitt og annara í kringum sig.

Hvað með Ísland?


Síð­ast­lið­inn vetur lögðu ell­efu íslenskir alþing­is­menn úr öllum flokkum ram þingá­lykt­un­ar­til­lögu um aðgerðir til að draga úr mat­ar­sóun. Þar er lagt til að mæla og greina umfang mat­ar­só­unar á Íslandi og leggja fram til­lögur um aðgerðir til að draga úr mat­ar­sóun.

Í greinar­gerð með þings­ályktunar­tillögunni kemur fram, sem oft hefur verið sagt í baráttúnni gegn sóun matvælla að einn þriðji, jafnvel hátt í helmingur þeirra matvæla sem ræktuð eru og framleidd í heiminum endi sem ónýttur úrgangur. Ennfremur segir í greinar­gerðinni:

„Þessi sóun á sér stað á öllum stigum; á akrinum, strax eftir uppskeru, við flutning, hjá fram­leiðendum, í verslunum, í mötu­neytum, á veitinga­stöðum og hjá neytendum. Mat er hent vegna þess að hans er ekki neytt fyrir síðasta söludag, hefur skemmst, lítur illa út eða afgangar ekki nýttir svo að dæmi séu tekin. Þegar talað er um matarsóun er miðað við að mat sé hent sem hefði annars getað nýst. Þessi matarsóun er óumhverfisvæn í alla staði því að fram­leiðsla, flutningur og urðun á matvælum krefst orku, vatns og land­nýtingar. Eftir­spurn eftir mat í einum heims­hluta þrýstir á um aukna land­nýtingu hinum megin á hnettinum og gerir það að verkum að stórum landsvæðum er breytt í ræktunar­land, oft á kostnað mikil­vægra vistkerfa, svo sem regnskóga. Í ljósi þess hversu mikil og neikvæð umhverfis­áhrif eru af matvæla­framleiðslu er ólíðandi hversu miklu magni af matvælum er hent. Á sama tíma býr milljarður jarðarbúa við hungur­mörk en með litlu broti af þeim matvælum sem er hent væri hægt að fæða þá sem svelta. Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna, „Food Wastage Footprint: Impacts on Natural Resources“, kemur m.a. fram að 28% ræktunar­lands í heiminum (1,4 milljarðar hektara) séu nýtt til að rækta mat sem skemmist eða sé sóað og að fram­leiðsla á mat sem er ekki neytt losi árlega 3,3 milljörðum tonna af gróðurhúsa­loft­tegundum út í andrúms­loftið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár