Síðasti bóksalinn

Í lok þessa mánaðar verður síðustu bóka­búðinni í Gex – L´Archiel des Mots -lokað. Það eru hjónin Anne og Alex Soubra-Belay sem hafa rekið þessa verslun um árabil. Hann er tölvunar­fræðingur og hún er endur­skoðandi. Þau áttu sér lengi þann draum að opna lítið bókakaffi og hafa staðið fyrir ýmsum menningar­viðburðum: ljóða­upplestrum, myndlistar­sýningum, bóka­kynningum, skipulagt leshringi, fundi og mann­fagnaði, selt og keypt gamlar bækur. En eftir taprekstur síðastliðin þrjú ár er draumurinn úti.

„Við eigum eftir að sakna kúnnanna en við getum ekki lengur keppt við Amazon og stór­markaðina.“

Verslun og viðskipti í frönskum smábæ

Það er notalegt andrúms­loft í þessari litlu búð sem er staðsett í hjarta bæjarins. Hér situr fólk, drekkur kaffi, spjallar og les. Það er lykt af gömlum pappír í loftinu, djass­plata rúllar á fóninum; búðin er stútfull af fallegum og merki­legum bókum, safn­gripum, sérvisku­legum ritum. Hér er stöðugt skvaldur um heims­málin, bókmenntir og slúður bæjarins. Það er sérstakur krókur fyrir börn sem una sér vel í kyrrð og ró.

„Flestir sem koma hérna eru annað hvort mjög ungir eða frekar gamlir. Fólk á aldrinum 20 til 60 ára sést ekki hérna,“ segir Anne á meðan hún hellir upp á kaffi og afgreiðir bækur.

Arnaldur Indriđason er sá íslenski höfundur sem mesta plássiđ tekur í frönskum bókabúđum. Bókabúðin í Gex er engin undan­tekning. Mynd: FE

Gex er lítill, gamall, franskur bær sem berst fyrir lífi sínu og því að geta verið lítill, gamall, franskur smábær. Hann liggur við landamæri Sviss með Júra­fjöllin í norðri, Alpana í suðri og stór­fljótið Rón í austri. Um árabil nutu bændur og bæjarbúar skatta­fríðinda vegna land­fræðilegrar einangrunar. Hér hefur ríkt friður í gegnum miklar styrjaldir og bærinn nýtur nálægðarinnar við Genf. Það er efnahagslegt öryggi, hagvöxtur og uppbygging. Í bænum búa um tíu þúsund manns frá ýmsum löndum; fjölmargir kjósa að búa hér í sveitinni, en vinna í stór­borginni sem er í um tuttugu kílómetra fjarlægð. Friðsælar kýr sjást á beit á hverju túni og undir fótum þeirra, í iðrum jarðar, liggur síðan öreinda­hraðall CERN þar sem vísinda­menn reyna að leysa helstu ráðgátur alheimsins.


Hér bjuggu til forna Keltar og hér dvaldi Júlíus Sesar á leið sinni norður eftir að hafa hertekið Genf og reisti sér kastala á hæstu hæð bæjarins, sem bæjarbúar síðan nýttu í mörg ár gegn árásum innrásar­herja.


Þótt kastalinn sé fallinn er bærinn enn að heyja sín varnarstíð. Nú er það nútíminn, stafrænar byltingar, ferðamenn og alþjóða­væðing sem herja á bæinn. Tíminn lætur ekkert í friði. Risa­stórir stór­markaðir hafa hreiðrað um sig umhverfis bæinn eins og rómverskur her og dregið máttinn úr öllum smáverslunum.


„Allar litlu búðirnar eru að hverfa. Þetta er orðinn svefnbær, hann var á margan hátt litríkari og skemmtilegri þegar hann var minni og fátækari,“ segir Anne.

Arnaldur Indriđason er sá íslenski höfundur sem mesta plássiđ tekur í frönskum bókabúđum. Í bókabúðinni í Gex er það sama upp á teningnum. Mynd: FE
Arnaldur Indriđa­son er sá íslenski höf­undur sem mesta plássiđ tekur í frönskum bóka­búđum. Í bóka­búð­inni í Gex er það sama upp á ten­ingnum. Mynd: FE

Rue du Commerse - Verslunargata

Bókabúðin er við Rue du Commerce, eða Verslunar­götu, sem varla stendur undir nafni lengur. Þarna hafa verið markaðir og litlar verslanir í gegnum aldirnar; nú standa þær flestar auðar eða þeim verið breytt í íbúðir.

Þarna er þó enn bakaríið sem stofnað var 1884, lítil sérviskuleg hljóðfæra­verslun, búð sem selur ólívu­olíur; þarna eru gardínu­salinn og bólstrarinn sem eiga lítið að gera í IKEA stór­veldið og draga segl sín smátt og smátt saman. Þrátt fyrir að bæjarbúar reyni eftir fremsta megni að versla við bændur á markaðnum, kaupa kjöt af slátraranum og brauð af bakaranum, er Golíat samt sem áður að taka slaginn að þessu sinni.

Rue du Commerce, eða Verslunar­gatan, í Gex. Mynd: FE

Bóksalinn í Gex hefur reynt eftir fremsta megni að aðlagast breyttum aðstæðum: boðið upp á þráðlaust net, enskar bækur sem og spænskar, þýskar jafnt sem franskar bækur. Ljúfir smáréttir og kökur með kaffinu. Hjónin hafa skipulegt menningar­viðburði af ýmsu tagi. Alex segir að þetta sé fyrst og fremst ástríða. „Konan mín elskar bækur, hún hreinlega gleypir þær í sig og langaði alltaf að stofna bókabúð. Ólst upp á miklu bóka­heimili. Við erum þakklát fyrir þennan tíma, hér inni eigum við dýrlegar minningar. Við munum halda áfram að miðla bókum og munum framvegis selja þær á netinu.“

Rue du Commerce, eða Verslunargatan, í Gex. Mynd: FE
Rue du Commerce, eða Versl­un­ar­gatan, í Gex. Mynd: FE

Bókabúðum fækkar og fækkar

Frakkar eru mikil bókaþjóð og lesa mikið. Öfugt við aðrar þjóðir hafa pappírs­bækur haldið velli gagnvart rafbókum – alla vega um sinn. En spjald­tölvur og rafbækur sækja hratt á sem veldur því að bókabúðum fækkar og fækkar. Þetta er sama þróun og um alla Evrópu og í Banda­ríkjunum. Stöðugt heyrast áhyggju­raddir yfir minnkandi lestri barna og unglinga. Bóksala á Íslandi hefur til að mynda dregist saman um 19 prósent að raunvirði frá árinu 2008. Eins og í Frakk­landi hefur bókabúðum á lands­byggðinni fækkað ört. Þar hafa stór­markaðirnir tekið við bóksölunni og einungis boðið upp á vinsælustu titlana. Örvæntingar­fullir bóksalar reyna að bregðast við kalli tímans og breyta búðum í bókakaffi og safnara­búðir.

Bókabúðir hafa gegnt mikilvægu hlutverki í frönsku þjóðlífi. Napóleon var mjög umhugað um þær og setti lög um bókabúðir sem gerði þær kröfur að bóksalar væru geðþekkir, menntaðir og víðsýnir. Þegar leyfi voru gefin út voru bóksalar látnir sverja eið þess efnis að þeir myndu þjóna upplýsingunni og frönsku þjóðinni af alúð og eljusemi.

Innan úr bókabúð þeirra hjóna í Gex. Mynd: FE

Hjónin Anne og Alex í L´Archipel Des Mots er meðvituð um þetta. „Nú þurfum við að finna nýja vinnu. En við gefumst ekki upp; við erum alltaf tilbúin að skipuleggja bóka­kynningar og ljóða­upplestur og að miðla bókum. Þetta eru engin endalok þótt ákveðnum kafla sé nú lokið.“

Innan úr bókabúð þeirra hjóna í Gex. Mynd: FE
Innan úr bóka­búð þeirra hjóna í Gex. Mynd: FE
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár