Flestir landsmenn ánægðir með frammistöðu Lilju

Flestir eru ánægðir með frammi­stöðu mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og fæstir með frammi­stöðu Sigríðar Á. Andersen.

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Flestir Íslend­ingar eru ánægðir með frammi­stöðu Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, eða 67,6 pró­sent. Fæstir eru ánægðir með frammi­stöðu Sigríðar Á. Andersen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, eða 13,8 pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu en Sigríður steig til hliðar stuttu áður en könn­unin var lögð fyrir.

Fleiri eru ánægðir en óánægðir með frammi­stöðu fimm af ell­efu ráð­herrum rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. Þeir ráð­herrar eru Lilja Alfreðs­dóttir, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra.

Mesta óánægjan er með störf Sigríðar Á. Andersen, eða 65,8 pró­sent og Bjarna Bene­dikts­sonar, eða 51,6 pró­sent, og minnsta óánægjan er með frammi­stöðu Lilju Alfreðs­dóttur, eða 9,6 pró­sent.

Í könn­un­inni kemur fram að almennt sé fleiri ánægðir með störf rík­is­stjórn­ar­innar nú en í lok árs 2018. Meiri ánægja sé með störf allra ráð­herr­anna nú, að utan­skil­inni Sigríði Á. Andersen. Mesta aukn­ing ánægju sé með mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra þótt fólk hafi verið ánægð­ast með Lilju í lok árs 2018.

Tölu­verður munur er á við­horfi til starfa ráð­herra eftir því hvaða flokk svar­endur myndu kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag. Þeir sem myndu kjósa VG eru ánægð­astir með þá ráð­herra sem koma úr flokknum, auk Lilju og það sama má segja um kjós­endur Sjálf­stæðs­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins sem almennt eru ánægðir með störf eigin ráð­herra.

Kjós­endur Pírata eru óánægð­ari en aðrir með störf Bjarna Bene­dikts­sonar, Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, Sigurðar Inga Jóhanns­sonar og Ásmundar Einars Daða­sonar. Þeir sem myndu kjósa Sam­fylk­ing­una eru óánægð­ari en aðrir með störf Sigríðar Á. Andersen, Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar og Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar.

Kynjamunur á viðhorfi

Kynja­munur er á við­horfi til fjög­urra ráð­herra. Karlar eru ánægð­ari með frammi­stöðu Bjarna Bene­dikts­sonar en konur en konur eru ánægð­ari með frammi­stöðu Svan­dísar Svav­ars­dóttur, Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar og Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar.

Háskóla­mennt­aðir eru ánægð­ari en aðrir með störf Katrínar Jak­obs­dóttur, Lilju Alfreðs­dóttur og Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar. Jafn­framt eru háskóla­mennt­aðir óánægð­ari en aðrir með störf Sigríðar Á. Andersen.

Svar­endur voru 848 tals­ins, koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks sem er dreg­inn með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Hver svar­andi gat svarað spurn­ingum um 7 ráð­herra af 11 en til­viljun réð um hvaða ráð­herra var spurt hverju sinni og í hvaða röð ráð­herr­arnir birt­ust svar­endum.

Svar­endur eru af báðum kynjum, alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Könnunin fór fram dag­ana 15. til 27. mars 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár