Par skotið til bana eftir að hafa myrt fjórtán í San Bernardino

Syed Farook og Tashfeen Malik myrtu fjórtán manns og særðu 17 í árás í hús­næði In­land Reg­i­onal Center, sem er þjón­ustumiðstöð fyr­ir fólk með þroska­skerðingu í San Bernardino-borg í Kaliforníu, í gær. Farook og Malik voru vopnuð árásarriflum og skamm­byssum. Þá fannst sprengi­efni á staðnum, en það var gert óvirkt eftir að árásinni var lokið. Parið lést eftir skot­bardaga við fjölmennt lið lögreglu eftir að það hafði lagt á flótta. Skot­árásin er sú mann­skæðasta sem átt hefur sér stað í Banda­ríkjunum síðan Sandy Hook fjölda­morðin voru framin árið 2012.

Samkvæmt frétt the Guardian lagði parið á flótta á bíl eftir árásina. Farook og Malik, sem voru 28 og 27 ára, voru skotin til bana eftir mikla eftirför lögreglu eftir svartri bifreið þeirra um götur San Bernardino-borgar. Farook var bandarískur ríkis­borgari og fæddist í landinu en foreldrar hans komu til landsins frá Pakistan. Fréttum um hvort hann og Malik hafi verið gift ber ekki saman, en samkvæmt The New York Times áttu þau sex mánaða dóttur saman. Hún var í pössun hjá móður Farook þegar foreldrar hennar frömdu ódæðis­verkið. Þau sögðu henni að þau væri að fara til læknis.

Farook starfaði í heilbrigðis­geiranum í San Bernardino og hafði verið á samkomu með kollegum sínum fyrr um daginn. Samkvæmt lögreglu yfirgaf hann þá samkomu reiður og snéri síðan til baka ásamt maka sínum til að fremja ódæðið.

Árásin á þjónustu­miðstöðina hófst um klukkan ellefu að morgni að staðar­tíma. Flestir þeirra sem voru myrtir eða slösuðust voru í námunda við miðstöðina á þeim tíma, að sögn lögreglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár