Fjarskiptaforstjórar hækka í launum samhliða bættum rekstri

Sýn og Síminn skiluðu bæði tölu­verðum hagnaði af starfsemi sinni í fyrra, en hann var að miklu leyti tilkominn vegna eignasölu. Forstjórar félaganna beggja hækkuðu einnig töluvert í launum á tíma­bilinu.

Orri Hauksson, forstjóri Símans, og Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar.
Orri Hauksson, for­stjóri Símans, og Heiðar Guð­jóns­son, for­stjóri Sýnar. Mynd: Samsett

Samhliða auknum hagnaði fjarskipta­félaganna Símans og Sýnar hækkuðu forstjórar þeirra töluvert í launum á síðasta ári. Hagnaðinn má að mestu leyti rekja til eignasölu félaganna, en einnig mátti greina tekjuvöxt og meiri framlegð af sölu þeirra. Áhrif faraldursins á fyrir­tækin hafa einnig minnkað, þótt enn séu reikitekjur ferða­manna minni en áður. Þetta kemur fram í ársreikningum Símans og Sýnar, sem birtust á vef Kaup­hallar í vikunni.

Söluhagnaður vegur þungt

Heildar­hagnaður Símans jókst töluvert í fyrra, eða úr 2,9 milljörðum króna í 5,2 milljarða. Hjá Sýn nam hagnaðurinn 2,1 milljarði króna á árinu, en það er í fyrsta skiptið sem félagið skilar jákvæðri afkomu frá árinu 2018.

Stærsti hluti hagnaðarins hjá Símanum kom hins vegar vegna sölu á dóttur­félagi sínu Sensa ehf., en félagið hagnaðist um 2,2 milljarða króna vegna þess. Sömuleiðis komu 1,2 milljarðar króna frá innviða­félaginu Mílu, sem Síminn hyggst selja til franskra fjárfesta í ár.

Rekstrar­niðurstaða Sýnar var einnig lituð af einskiptis­hagnaði, en félagið seldi farsíma­innviði sína á árinu til bandarískra fjárfesta. Hagnaðurinn af þeirri sölu var 6,5 milljarðar króna, en 2,5 milljarðar af þeirri upphæð var bókfærður í fyrra. Því skilaði Sýn tapi af rekstri sínum enn eitt árið í fyrra, ef sölu­hagnaðurinn er ekki tekinn með.

Betri rekstur og hærri laun forstjóra

Hins vegar bættist rekstur beggja félaga einnig nokkuð á árinu, en samkvæmt Símanum skýrist góð afkoma þeirra af árangurs­ríkum hagræðingar­aðgerðum. Þar nefnir félagið auknar tekjur á ýmsum vörum, líkt og farsímum og sms magns­endingum, en einnig hefur launa­kostnaður minnkað töluvert vegna færri stöðu­gilda.

Hjá Sýn jukust tekjur úr fjölmiðla­hluta félagsins, mestmegnis vegna helmingi meiri auglýsinga­tekna hjá Vísi. Einnig segir félagið að góður vöxtur hafi verið í farsíma­tekjum, auk þess sem bætt innkaupa­stýring hafi skilað sér í meiri hagnaði af vörusölu félagsins.

Samhliða bættum rekstrar­niðurstöðum félaganna tveggja hafa laun forstjóra þeirra einnig hækkað töluvert. Heildar­laun Orra Hauks­sonar, forstjóra Símans, að frádregnum lífeyris­greiðslum námu að meðaltali 5,6 milljónum króna á mánuði í fyrra, en það er 16,3 prósentum meira en á árinu 2020.

Laun Heiðars Guðjóns­sonar, forstjóra Sýnar, hækkuðu þó enn meira, eða úr 3,5 milljónum á mánuði í 5,3 milljónir króna. Þetta jafn­gildir 50 prósenta launa­hækkun.

COVID-áhrif minni, en þó til staðar

Samkvæmt Sýn gætti áhrifa heims­faraldursins enn í rekstri félagsins í fyrra, þar sem reikitekjur ferða­manna voru helmingi lægri en þær voru fyrir faraldurinn. Þó höfðu þær hækkað um 40 prósent á milli áranna 2020 og 2021. Sömuleiðis jukust reikitekjur aftur hjá Símanum, eftir að hafa að mestu leyti horfið árið 2020.

Sýn segir einnig að versnandi rekstur dóttur­félagsins Endor, sem veitir fyrir­tækjum þjónustu um rekstur upplýsinga­tæknikerfa, sé vegna faraldursins. Félagið býst við miklum tekju­vexti í ár, þar sem búist er við að reksturinn komist aftur í fyrra horf eftir faraldurinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár