Þyrfti að grípa inn snemma til að minnka kynjahalla í háskólum

Vinnu­markaðs­hagfræðingur segir minni ásókn karla í háskóla geta verið vegna staðalímynda og félagslegra viðmiða. Nauðsynlegt sé að byrja á að hjálpa drengjum að ná fótfestu á fyrri stigum skóla­kerfisins ef jafna á hlut karla og kvenna í háskólum.

Mikill munur er á náms­þátttöku karla og kvenna í háskólum á Íslandi, en mikilvægt er að grípa inn á fyrri stigum skóla­kerfisins til að draga úr honum. Þetta segir Herdís Steingríms­dóttir, vinnu­markaðs­hagfræðingur og dósent við Copenhagen Business School, í nýjasta tölublaði Vísbendingar sem kom út í síðustu viku.

Hallinn byrjar snemma

Samkvæmt Herdísi virðast drengir eiga á brattann að sækja frá því skóla­ganga þeirra hefst hérlendis. Samræmd próf sýna að marktækur munur sé á milli kynjanna í íslensku­kunnáttu, en 15 ára strákar eru tvöfalt líklegri til að geta ekki lesið sér til gagns heldur en stelpur.

Þrátt fyrir þennan mikla mun segir Herdís þó að líklega sé ekki marktækur munur á náms­greind drengja og stúlkna. Hins vegar virðist vera kynbundinn munur þegar kemur að færni og hegðunar­þáttum. Hún bætir við að flest bendi til þess að slíkir eigin­leikar séu ekki óumbreytanlegir og ráðist að miklu leyti af umhverfis­þáttum, svo sem uppeldi, fyrir­myndum og viðhorfum.

Ýmsir mögulegir áhrifaþættir

Herdís bendir einnig á að fækkun karlkyns kennara gæti að einhverju leyti útskýrt hvers vegna drengir hafi dregist aftur úr í skóla­kerfinu. Sú þróun gæti leitt til þess að karlkyns nemendur hafi færri fyrir­myndir, en Herdís segir einnig að kennarar gætu verið bjagaðir í viðhorfi sínu gagnvart nemum af gagnstæðu kyni. Þó hafa rann­sóknir sem skoða þessar kenningar ekki sýnt fram á afgerandi niður­stöður.

Önnur möguleg útskýring á meiri náms­þátttöku kvenna í háskólanum er sú að þær hafi meiri fjárhags­legan ábata af námi heldur en karlar. Samkvæmt Herdísi geta konur vænst þess að hækka meira í launum með betri menntun heldur en karlar hér á landi, miðað við vinnu­markaðs­tölur Hagstofunnar. Þó segir hún að líklega liggi aðrar ástæður einnig að baki kynja­hallanum í háskólum á Íslandi, þar sem munurinn á náms­þátttöku karla og kvenna hafi aukist á síðustu árum, samhliða því sem fjárhags­legi ávinningur háskóla­náms hefur orðið jafnari á milli kynjanna.

Að lokum segir Herdís að nýjar rann­sóknir bendi til þess að staðalímyndir og félagsleg norm gætu valdið kynja­hallanum. Hins vegar hafa fáar rann­sóknir skoðað þessa áhrifa­þætti á háskóla­göngu karla og kvenna, en sýnt hefur verið að þeir hafa áhrif á aðra þætti, til dæmis vinnu­markaðs­þátttöku kvenna. Þessi viðmið gætu virst vera þrálát og breytast hægt, en samkvæmt Herdísi er ýmislegt sem bendir til þess að hægt sé að breyta þeim ef réttum aðgerðum er beitt.

Hægt er að lesa grein Herdísar í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár