Framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum: „Skil ekki þessi læti“

„Ég skil ekki þessi læti. Ég skil ekki óttann og við hvað fólk er hrætt,“ segir fjölmiðla­maðurinn og Bagga­lúturinn Guðmundur Pálsson, sem skoðaði framlag Íslands á Feneyjar­tvíæringnum á dögunum ásamt fjöl­skyldu sinni.

Framlag Íslands, Fyrsta moskan í Feneyjum eftir svissneska og seyðfirska myndlistar­manninn Christoph Jules Büchel, hefur vakið heims­athygli og ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti verksins. Büchel, sem serhæfir sig í ofur­raunsæis­legum innsetningum með pólitískum skír­skotunum, breytti kaþólskri kirkju í Feneyjum í mosku og hefur verið notuð sem slík af múslimum sem eru fjölmennir í borginni.

Stríður straumur fólks


Eins og áður sagði hefur fram­lag Íslands vakið mikla athygli og stríður straumur fólks lagt leið sína í mosk­una, sem ku illa merkt og lítið áber­andi. „Þarna var fullt af fólki að leita að þessu, til að kom­ast inn og skoða. Kirkjan eða moskan er algjör­lega ómerkt þannig að það getur verið snúið að finna hana,“ segir Guð­mundur í sam­tali við Kjarnann.

Snorri leikur sér með leikfangabíl í moskunni í Feyneyjum. Mynd: Guðmundur Pálsson

Snorri leikur sér með leikfangabíl í moskunni í Feyneyjum. Mynd: Guðmundur Pálsson
Snorri leikur sér með leik­fanga­bíl í mosk­unni í Fey­n­eyjum. Mynd: Guð­mundur Pálsson

„Okkur fannst ótrúlega gaman að koma þarna, enda mjög flott og áhrifa­mikið verk. Þarna fékk maður líka tækifæri til að upplifa eitthvað sem maður upplifir ekki á hverjum degi, það er að heimsækja mosku, og finna frið­sældina og fegurðina. Krökkunum fannst mjög gaman að koma þarna, og Snorri sonur minn, sem er þriggja ára, hljóp þarna um allt og lék sér með leikfangabíl á teppinu sem hann hafði með sér.“

Erfitt að finna hús sem er ekki við síki í Feneyjum


Guð­mundur segir við­stadda hafa farið að reglum, farið úr skónum og sýnt lista­verk­inu virð­ingu. „Svo er líka spurn­ingin hvenær þetta hættir að vera lista­verk og verður bara moska, því þangað hefur fólk mætt til að biðja, þó við höfum ekki fenigð að upp­lifa það.“

Fram hefur komið að borgar­yfirvöld í Feneyjum og lögregla telji framlag Íslands vera öryggisógn. Guðmundur segist hafa heyrt að borgar­yfirvöld reyni hvað þau geta til að loka sýningunni, og því sé þess gætt til að mynda að kirkjunni sé lokað á réttum tíma til að gefa ekki höggstað á sýningunni. „Þetta tal um að það sé ekki hægt að tryggja öryggi á staðnum, af því að kirkjan standi við síki og brú, er svolítið spaugileg, því það er eiginlega leitandi að húsi í Feneyjum sem ekki stendur við síki, brú eða bæði,“ segir Guðmundur kíminn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár