1108 nýjar bjórtegundir á einu ári í Danmörku

Hvað dettur fólki í hug þegar Danmörk er nefnd? Hafmeyjan, pylsur, Tívolí, bjór, hakkeböf og Margrét Þórhildur. Þetta er vissulega allt á sínum stað og sumt eins og það hefur alltaf verið. Eitt hefur þó gjörbreyst á síðustu árum: bjórinn.

Fyrir ekki mjög mörgum árum þurftu danskir bjóráhugamenn og ferðamenn að gera upp við sig hvort þeir vildu drekka Carlsberg eða Tuborg. Hof frá Carlsberg eða Grøn frá Tuborg. Í báðum tilvikum pilsner bjórar sem báru höfuð og herðar yfir aðrar tegundir á markaðnum. Hvort það var Hof eða Grøn sem varð fyrir valinu var fyrst og fremst smekks­atriði.

Þeir Hof og Grøn eru enn á markaðnum, sá síðarnefndi mest selda einstaka bjór­tegundin í landinu og margir Danir láta ekkert annað en aðra þessara tegunda, inn fyrir sínar varir, þegar bjór er annars vegar. Carlsberg keypti árið 1970 Tuborg fyrir­tækið en neytendur skynjuðu ekki neinar breytingar við eigenda­skiptin. Í danska bjór­heiminum hafa hinsvegar á síðustu árum orðið miklar breytingar, mjög miklar er víst óhætt að segja.

Ölgerðarhúsin fimmfalt fleiri en um aldamótin


Árið 2000 voru 18 ölgerð­ar­hús í Danmörku. Í einu dönsku dag­blað­anna frá því ári var við­tal við fram­kvæmda­stjóra lít­ils ölgerð­ar­húss þar sem hann sagði að bar­áttan fyrir til­ver­unni væri hörð og hann spáði því að fram­leið­endum myndi fækka á næstu árum.

Þessi maður hafði ekki lög að mæla og hefur ekki, frekar en kannski nokkur annar, látið sér til hugar koma að fimmtán árum síðar yrðu ölgerðar­húsin orðin 121 talsins. Þeim hefur fjölgað jafnt og þétt, voru orðin 53 árið 2005, 98 árið 2007 og ári síðar, 2008, voru þau orðin 120. Fækkaði talsvert eftir á árunum eftir hrun en fór aftur að fjölga fyrir tveim árum og eru nú orðin ívið fleiri en 2008 eða 124.

Flest brugghúsin lítil


Á heima­síðu sam­bands danskra bjór­fram­leið­enda kemur fram að lang­flest ölgerð­ar­húsin eru smá í sniðum. Með fáa starfs­menn og tak­mark­aða fram­leiðslu. Iðulega er fram­leiðslan ein­ungis seld á nokkrum stöðum, oft í nágrenni brugg­húss­ins. Þetta er reyndar það sem skapar sér­stöð­una: að geta gengið inn á krá, eða veit­inga­hús og fengið þar bjór, sem kannski fæst hvergi ann­ars staðar. Hrunið kenndi líka mörgum að ráð­leg­ast væri að fær­ast ekki of mikið í fang.

Til að styrkja reksturinn, og kynna fram­leiðsluna, auglýsa mörg litlu ölgerðar­húsin sérstök bjórkvöld, fyrir til dæmis starfsmanna­félög eða vinahópa. Á slíkum kvöldum, þar sem aðgangs­eyrir er hóflegur, er fram­leiðslan kynnt og jafnframt boðið uppá eitthvað matarkyns með. Þátt­takendur geta svo auðvitað keypt bjór og haft með sér heim. Sum brugg­húsanna selja líka talsvert til útlanda. Víða um heim er bjóráhugafólk sem fylgist grannt með nýjungum og pantar, kannski bara nokkrar flöskur, á netinu og fær sendar heim. Þegar flaskan er tóm fer hún svo í flösku­safnið og vekur kannski athygli gesta af því að enginn hefur áður séð flösku með miða frá þessum fram­leiðanda.

Miðborg Kaupmanna­hafnar. Mynd: EPA

1108 nýjar tegundir


Í árs­yf­ir­liti sam­bands bjór­fram­leið­enda kemur fram að á síð­asta ári komu á mark­að­inn í Danmörku 1108 nýjar teg­undir af dönskum bjór. Þetta er næsta ótrú­leg tala. Í yfir­lit­inu kemur ekki fram hvað teg­und­irnar sem hurfu af sjón­ar­svið­inu voru margar en þetta sýnir hversu mikil gerjun er á þessum mark­aði. Árið 2004 voru nýjar teg­undir sem komu á mark­að­inn 82 tals­ins og þótti all­nokkuð.

Miðborg Kaupmannahafnar. Mynd: EPA
Miðborg Kaup­manna­hafnar. Mynd: EPA

Þrátt fyrir allan þennan mikla fjölda ölgerðar­húsa, og tegunda, sem litið hafa dagsins ljós á síðustu árum halda þeir Carlsberg og Tuborg sínu striki. Þetta gamal­gróna fyrirtæki sem stendur traustum fótum í heima­landinu og er með fjölmargar verksmiðjur víða um heim. Á heima­vellinum hefur risinn þó ekki sofið á verðinum en hefur á síðustu árum sett á markaðinn fjölmargar nýjar tegundir og jafnvel hafið á ný fram­leiðslu á tegundum sem horfnar voru af markaði eins og til dæmis Gamle Carlsberg sem hætt var að framleiða árið 2003 en var svo endur­vakinn, sem svo mætti segja, árið 2012.

Grisk


Þótt nöfnin á bjór­teg­und­unum séu mörg hver ekki sér­lega frum­leg eða lýsi sér­stöku hug­mynda­flugi eru þar þó und­an­tekn­ingar. Lítið ölgerð­ar­hús við Hró­arskeldu­fjörð­inn, Hornbeer sem var stofnað árið 2008 setti, skömmu eftir hrun, á mark­að­inn bjór sem nefndur var Grisk (græðgi, gráð­ugur). Á flösku­mið­anum var and­lits­mynd af manni sem líkt­ist mjög hinum þýska hrekkjalómi Uglu­spegli og undir mynd­inni stóð SparNar.

Þetta fór fyrir brjóstið á forsvars­mönnum SparNord bankans sem kröfðust lögbanns á notkun miðans og orðanna SparNar. Áður en lögbanns­krafan kom til kasta fógeta breytti brugg­húsið miðanum lítillega. Hvort sem það hafði einhver áhrif eða ekki varð lögbanns­málið til þess að vekja athygli á bjórnum og eftir að Hróarskeldu­bankinn (Roskilde Bank) komst í þrot í hruninu fengu margir fyrr­verandi starfs­menn þar sendan Grisk bjór frá fyrverandi viðskipta­vinum sem tapað höfðu sparifé sínu þegar bankinn varð gjald­þrota. Grisk bjórinn hefur einnig notið vinsælda utan Danmerkur, til dæmis í Noregi.

Framtíðin


Enginn veit hvað fram­tíðin ber í skauti sér, það gildir um danska bjór­inn líkt og annað. Danskir bjór­sér­fræð­ingar telja að litlu ölgerð­ar­húsin muni á næstu árum ná til sín mun stærri hlut af mark­aðnum. Fyrir tíu árum var mark­aðs­hlut­deild þeirra eitt pró­sent en í dag er hlut­fallið komið upp í sex pró­sent, aukn­ingin lang mest á síð­ast­liðnum tveim árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár