Hvar er Ed Stone? Kampavínskassi boðinn fyrir vitneskju um steintöflu Milliband

Æsileg leit stendur yfir hjá bresku slúður­pressunni og álits­gjöfum af hægri væng breskra stjórn­mála að "Ed Stone", risa­vaxinni stein­töflu sem Ed Miliband lét höggva í sex helstu kosninga­loforð Verkamanna­flokksins og var opinberuð örfáum dögum fyrir þing­kosningarnar í síðustu viku. Á meðal þess sem boðið hefur verið í verðlaun fyrir upplýsingar um hvar taflan er niður­komin er kassi af kampavíni.

2,5 metrar á hæð og tvö tonn á þyngd


Ed Miliband, verð­andi fyrrum for­maður Verka­manna­flokks­ins, lét meitla kosn­inga­lof­orð flokks síns í steintöflu á loka­spretti kosn­inga­bar­átt­unnar fyrir bresku þing­kosn­ing­arnar, sem fram fóru síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Fyrir viku afhjúpaði hann steintöfl­una, sem er um 2,5 metra há og tvö tonn á þyngd, og sagði að hann hann ætl­aði að koma henni fyrir í farði ráð­herra­bú­stað­ar­ins við Downingstræti ef flokk­urin hans ynni sigur í kosn­ing­unum. Þannig yrði hún stöðug áminn­ing um að ekki mætti svíkja kjós­endur flokks­ins. Fréttir herma að gerð steintöfl­unnar hafi kostað allt að 30 þús­und pund, rúmar sex millj­ónir króna.

Stein­taflan vakti mikla athygli, og kátinu, á samfélags­miðlum. Samstundis fór að bera á gagnrýni og háði vegna þess að taflan þótti minna á Móses og boðorðin tíu. Athæfið þótti auk þess gamaldags og mikið var fjallað um það á Twitter undir merkinu #EdStone.


Ed just relaxing at home with his new kitchen table. pic.twitter.com/QzSsyM2FCb


— Stansaid Airport (@StansaidAirport) May 8, 2015


Sérstök símalína og kassi af kampavíni


Verka­manna­flokk­ur­inn beið síðan afhroð í kosn­ing­unum, sér­stak­lega vegna stór­taps í Skotlandi þar sem flokk­ur­inn fékk ein­ungis eitt þing­sæti af 59. Ed Miliband sagði af sér for­mennsku í kjöl­far ósig­urs­ins sem varð enn bitr­ari í ljósi þess að Íhalds­flokk­ur­inn, helsti póli­tíski and­stæð­ingur flokks­ins, vann hreinan meiri­hluta.

En stein­taflan er hins vegar ekki gleymd og nú vilja bæði breska slúður­pressan og álits­gjafar af hægri væng stjórn­málanna endilega komast yfir hana. Taflan virðist hins vegar horfin af yfirborði jarðar og talsmenn Verkamanna­flokksins hafa ekkert viljað gefa upp um hvar hún sé geymd.

Samkvæmt frétt The Guardian hefur slúður­blaðið The Mail boðið hverjum þeim sem geti veitt upplýsingar sem leiði til þess að „Ed Stone“ finnist kassa af kampavíni. The Sun hefur sett upp sérstaka símalínu fyrir ábendingar um hvar stein­taflan sé niður­komin. The Telegraph og The Mail on Sunday lögðust í rannsóknar­vinnu og höfðu sambandi við yfir 50 múrara­fyrirtæki víðsvegar um Bretland til að komast að því hvort þau hafi gert töfluna og viti hvar hún sé, en án árangurs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár